Kvennakór Suðurnesja

Afmælisdagur:

22. febrúar 1968

Um:

Æfingar mánudaga (raddæfingar) í Tónlistarskólanum í Garði og miðvikudaga í KK-salnum, Vesturbraut 17-19, Reykjanesbæ kl. 19:30

Kennitala:

591071-0259

17.10.2009 12:30

Raddæfing hjá messó

Mánudaginn 19. október verður raddæfing hjá messó.  Fyrir miðvikudag eiga allar að vera búnar að læra lagið "Haustvísur til Máríu", og þær sem ekki eru búnar að læra "Pater Noster" og "Heil sért þú María" halda áfram með þau. 

15.10.2009 08:42

Aðalfundur Gígjunnar

06.10.2009 - Aðalfundur Gígjunnar 2009 verður haldinn 17. október


Laugardaginn 17. október kl. 16-18 verður aðalfundur Gígjunnar haldinn í Söngskólanum Domus Vox, Laugavegi 116, 105 Reykjavík.

Dagskrá aðalfundar:

  1. Skýrsla stjórnar.

  2. Reikningar.

  3. Umræða um skýrslu og reikninga.

  4. Tillögur og lagabreytingar.

  5. Ákvörðun árgjalds.

  6. Kosning formanns.

  7. Kosning stjórnar- og varamanna.

  8. Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.

  9. Önnur mál.

Lagabreytingar og aðrar tillögur frá aðildarkórum skulu berast stjórn eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.

Í lok fundar verður til umfjöllunar Gildi nefnda og öflugs félagsstarfs í kvennakórum.

Framsögu hafa fulltrúar úr kvennakórum sem hafa mikla reynslu af þátttöku í félagsstarfi á vegum sinna kóra.

Aðildarkórar Gígjunnar eru hvattir til þess að senda formann og stjórnir sínar á fundinn. Hver kór fer með tvö atkvæði á fundinum.

Stefnumótun Gígjunnar er í höndum aðildarfélaga, aðalfundar og þeirra aðila sem kosnir eru til stjórnunar- og nefndarstarfa, því er mjög mikilvægt að allir kórar sendi fulltrúa sína.

Aðildarkórar eru einnig hvattir til að koma með tillögur að lagabreytingum. Breytingartillögur þurfa að berast fyrir fundinn þannig að hægt sé að kynna þær fyrir öðrum kórum með tölvupósti. Vinsamlegast sendið allar tillögur eða hugmyndir að lagabreytingum á
netfangið: gigjan2003(hjá)gmail.com fyrir laugardaginn 3. október.

Við hlökkum til þess að sjá ykkur sem flestar á fundinum.
Með bestu kveðjum frá stjórn Gígjunnar;

Dagbjört, Kyrjurnar
Jófríður, Kvennakór Kópavogs
Þorgerður, Vox feminae
Þuríður, Kvennakór Reykjavíkur
Heiða, Kvennakór Suðurnesja

09.10.2009 20:55

Raddæfing hjá sópran

Mánudaginn 12. október verður raddæfing hjá sópran.  Fyrir miðvikudaginn eiga allar að vera búnar að læra "Pater Noster".

30.09.2009 23:14

Raddæfing hjá alt

Mánudaginn 5. október verður raddæfing hjá alt.  Fyrir æfinguna á miðvikudaginn eiga allar að vera búnar að læra lagið "Heil sért þú María" utan að.  Þær sem eiga nóturnar að "Pie Jesu" og "Yfir fannhvíta jörð" vinsamlegast takið þær með ykkur.

24.09.2009 13:49

Raddæfing hjá messó

Það verður raddæfing hjá messó mánudaginn 28. september kl. 20.

Nýjar myndir í myndaalbúmi.

21.09.2009 09:26

Raddæfing hjá sópran

Það var gaman að sjá margar nýjar konur á æfingu síðastliðið miðvikudagskvöld og vonum við að öllum hafi litist vel á og haldi áfram að syngja með okkur.  Við eigum jafnvel von á fleirum sem hafa boðað komu sína en komust ekki síðast.  Kynningarkvöldið tókst vel, mætingin hefði kannski alveg mátt vera aðeins meiri, en þær sem mættu skemmtu sér vel og gæddu sér á kræsingunum sem kvennakórskonur buðu upp á.  Við þökkum þeim sem kíktu á okkur og kvennakórskonum er þakkað fyrir frábært kvöld og glæsilegar veitingar.
Í kvöld, mánudag 21. september verður raddæfing hjá sópran þannig að það er frí hjá messó og alt.  Á miðvikudagskvöld eiga allar að mæta.  Minnt er á að æfingar hefjast núna kl. 20 en ekki kl. 19.30 eins og verið hefur undanfarin ár, og eru konur beðnar að mæta tímanlega svo æfingarnar nýtist sem best. 
Athugið að undir liðnum "Á döfinni" hér að ofan má sjá hvað er framundan hjá kórnum.

08.09.2009 13:38

Kynningar- og skemmtikvöld Kvennakórs Suðurnesja

Næstkomandi mánudagskvöld, 14. september, heldur Kvennakór Suðurnesja kynningar- og skemmtikvöld í Listasmiðjunni á Ásbrú kl. 20. Allar konur eru velkomnar en kórinn vantar fleiri hressar og skemmtilegar konur í sínar raðir og býður því sérstaklega velkomnar konur sem hafa gaman af söng.

Kvennakór Suðurnesja var stofnaður 1968 og er hann elsti starfandi kvennakór landsins.  Kórinn er skipaður konum alls staðar að af Suðurnesjum og vonast kórfélagar til að sjá konur úr öllum bæjarfélögunum á Suðurnesjum á mánudagskvöldið.  Starfið hefur verið sérstaklega gróskumikið undanfarin ár, en meðal annars tók kórinn þátt í kórakeppni sem fram fór á Riva del Garda á Ítalíu í október 2007 og vann þar til verðlauna í gullflokki.  Í febrúar 2008 hélt kórinn síðan upp á 40 ára afmæli sitt með stórtónleikum í Íþróttaakademíunni ásamt Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og einsöngvurum, auk þess sem fjöldi kvenna sem hafa sungið með kórnum í gegnum tíðina tóku þátt í tónleikunum.  Árið 2004 fór kórinn í söngferðalag til Ungverjalands og árið 2000 var kórnum boðið sem gestakór í kórakeppni sem fram fór í Cork á Írlandi.  Auk þessa tekur kórinn þátt í Landsmótum kvennakóra sem haldin eru á þriggja ára fresti á mismunandi stöðum á landinu, en Kvennakór Suðurnesja hélt landsmót í Reykjanesbæ árið 2003.  Kórinn var einn af stofnendum Gígjunnar, landssambands kvennakóra á Íslandi og kom fyrsti formaður sambandsins, Guðrún Karitas Karlsdóttir, einmitt frá Kvennakór Suðurnesja.

Kvennakórinn heldur a.m.k. tvenna til þrenna tónleika á ári, auk þess að taka þátt í ýmsum uppákomum svo sem Ljósanótt og Þrettándagleði í Reykjanesbæ.  Kórinn tók einmitt virkan þátt í nýliðinni Ljósanótt þar sem hann söng m.a. á tónleikum í Svarta Pakkhúsinu á fimmtudagskvöld, á útisviðinu á föstudags- og laugardagskvöld og á hátíðartónleikum í Fjölbrautaskólanum á sunnudeginum ásamt öðrum kórum og listamönnum.  Auk þess kom kórinn fram í Duushúsum og Íþróttaakademíunni.

Kvennakór er ekki bara vettvangur söngs, heldur er þetta líka skemmtilegur félagsskapur kvenna og gera kórfélagar ýmislegt skemmtilegt saman.  Auk þess að fara í árlegar æfingabúðir þar sem vinna og skemmtun fara vel saman, koma konurnar t.d. alltaf saman ásamt fjölskyldum fyrir jólin og gera laufabrauð, sem síðan er selt til fjáröflunar fyrir kórinn.  Einnig er haldið lokahóf á vorin og ýmislegt fleira eftir því sem tilefni eru til, en kórinn fer alla jafna í frí yfir sumartímann og á stórhátíðum.

Við hvetjum allar konur til að kíkja á Kvennakórinn á mánudagskvöldið og kynna sér starfsemi hans.

07.09.2009 13:12

Frí í þessari viku

Þá er Ljósanótt lokið og óhætt að segja að Kvennakórskonur hafi staðið sig frábærlega í þeirri fjölbreyttu dagskrá sem kórinn tók þátt í, en hún hófst á fimmtudagskvöld með tónleikunum "Pakkið í Pakkhúsinu", en þá söng kórinn með Guðmundi Rúnari Lúðvíkssyni og hljómsveit, lög eftir hann fyrir fullu húsi á efri hæð Svarta Pakkhússins.  Á föstudeginum sungu Kvennakór Suðurnesja og Karlakór Keflavíkur lög úr Ljósanætursvítunni við opnun sýningarinnar Reykjanes 2009.  Um kvöldið kom Pakkið í Pakkhúsinu síðan fram á útisviðinu við Ægisgötu og flutti nokkur lög.  Á laugardeginum byrjaði Kvennakórinn í Íþróttaakademíunni á sýningunni Reykjanes 2009 þar sem hann flutti nokkur lög, næst var haldið í Bíósal Duushúsa þar sem einnig var sungið, og um kvöldið tók kórinn síðan þátt í Ljósanætursvítunni á útisviðinu ásamt Karlakór Keflavíkur, ýmsum söngvurum og hljómsveit frammi fyrir 40-50 þúsund manns að talið var.  Á sunnudaginn lauk síðan Ljósanótt með glæsilegum hátíðartónleikum í Fjölbrautaskóla Suðurnesja þar sem fram komu Kvennakór Suðurnesja, Karlakór Keflavíkur, kór Keflavíkurkirkju, sönghópurinn Orfeus, fjöldi einsöngvara og hljómsveit.  Troðfullt var á tónleikunum og voru áhorfendur greinilega ánægðir með þessa tónlistarveislu, en á dagskrá var m.a. söngleikjasyrpa og atriði úr óperunni La Boheme.
Alls kom því Kvennakór Suðurnesja sjö sinnum fram á þessari Ljósanæturhátíð og gekk þetta allt saman mjög vel.  Kórkonur eru því eflaust þreyttar eftir langa sönghelgi og því verða engar æfingar þessa vikuna svo að raddböndin nái að jafna sig.  Kórinn hittist aftur á kynningarkvöldi kórsins mánudaginn 14. september og svo hefjast æfingar fyrir vetrarprógramm miðvikudaginn 16. september.  Nánar um kynningarkvöldið fljótlega.

01.09.2009 15:06

Ljósanæturævintýri Kvennakórs Suðurnesja

Um næstu helgi, 3. - 6. september, verður Ljósanótt haldin í tíunda sinn í Reykjanesbæ og verður hátíðin enn glæsilegri en áður af því tilefni.  Kvennakór Suðurnesja tekur virkan þátt í hátíðinni og kemur fram við ýmis tækifæri alla dagana sem hátíðin stendur yfir. 
Á fimmtudagskvöld kl. 21 verða haldnir tónleikarnir "Pakkið í Pakkhúsinu" á efri hæð Svarta Pakkhússins þar sem Guðmundur Rúnar Lúðvíksson mun flytja 13 frumsamin lög ásamt Kvennakór Suðurnesja og hljómsveit, og á föstudagskvöld verða nokkur þessara laga flutt á útisviðinu við Ægisgötu.  Á föstudeginum mun Kvennakórinn ásamt Karlakór Keflavíkur syngja við opnun sýningarinnar Reykjanes 2009 í Íþróttaakademíunni kl. 16.
Á laugardag kemur Kvennakór Suðurnesja fram á sýningunni Reykjanes 2009 í Íþróttaakademíunni kl. 13 og í Bíósal Duushúsa kl. 14, en þar mun kórinn flytja lög frá ýmsum löndum.  Á laugardagskvöldinu verður svo flutt á útisviðinu "Ljósanætursvítan", lög eftir tónskáld úr bæjarfélaginu í útsetningu Þóris Baldurssonar.  Fram koma: Einar Júlíusson, Erna Hrönn, Eiríkur Hauksson, Björgvin Halldórsson, Kvennakór Suðurnesja og Karlakór Keflavíkur ásamt hljómsveit, en kórarnir munu meðal annars flytja Ljósalagið 2009, "Ég sá ljósið" eftir Rúnar Júlíusson.  Að því loknu hefst hin margrómaða flugeldasýning Ljósanætur.
Á sunnudaginn verða síðan haldnir hátíðartónleikar í Fjölbrautaskóla Suðurnesja kl. 16, en þar munu kórar af svæðinu, einsöngvarar og hljómsveit flytja lög og atriði úr söngleikjum og óperum, m.a. úr Jesus Christ Superstar, Fiðlaranum á þakinu, My fair lady og La boheme.  Flytjendur eru Valdimar Haukur Hilmarsson baritón, Bragi Jónsson bassi, Rúnar Guðmundsson tenór, Jóhann Smári Sævarsson bassi, Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópran, Dagný Jónsdóttir sópran, Jelena Raschke sópran, Elmar Þór Hauksson tenór, Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, kór Keflavíkurkirkju, sönghópurinn Orfeus, hljómsveitin Talenturnar og félagar út Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.  Stjórnendur eru Arnór Vilbergsson og Karen J. Sturlaugsson.
Kvennakór Suðurnesja hvetur alla til að kíkja á þessa frábæru viðburði og að sjálfsögðu á allt það sem er í boði á Ljósanótt, en dagskrána í heild sinni má sjá á ljosanott.is.

26.08.2009 11:06

Ljósanæturævintýri Kvennakórs Suðurnesja

Það verður þéttskipuð dagskrá hjá kórnum fram að og á Ljósanótt, en hún lítur nokkurn veginn svona út:

Sunnudagur 30. ágúst kl. 20-22, kóræfing í aðstöðunni okkar.  Æfum lögin okkar úr tónleikaprógrammi frá í vor.

Mánudagur 31. ágúst kl 19-?, æfing með Guðmundi Rúnari uppi á lofti í Svarta pakkhúsinu.

Þriðjudagur 1. september kl. 19-?, sameiginleg æfing í Fjölbrautaskólasalnum fyrir tónleika á sunnudeginum, lögin með öllum kórunum.

Miðvikudagur 2. september kl. 20-?, æfing með Karlakórnum og hljómsveit í KK sal Vesturbraut, Suðurnesjalög.

Fimmtudagur 3. september.  Kl. 18, hljóðprufa í Svarta Pakkhúsinu.  Kl. 19, æfing í Fjölbrautaskólanum.  Kl. 21, tónleikar með Guðmundi Rúnari uppi á lofti í Svarta pakkhúsinu.  Mæting fyrir kl. 21.   Klæðnaður (hvít) skyrta, efri partur af búningnum okkar og gallabuxur (eða aðrar buxur) .  Þemað verður gult og rautt þannig að allir sem koma fram á tónleikunum eiga að vera í einhverju gulu eða rauðu, eða með eitthvað í þessum litum á sér.  Það má því vera í gulri eða rauðri skyrtu eða bol við svarta toppinn, eða vera með klút, trefil eða eitthvað þess háttar í þessum litum.

Föstudagur 4. september kl. 16, syngjum með Karlakórnum við opnun sýningarinnar Reykjanes 2009 í Íþróttaakademíunni, Suðurnesjalögin.  Mæting kl. 15.30.  Klæðnaður snyrtilegur.  Hljóðprufa á útisviði kl. 18.  Syngja með Guðmundi Rúnari á Stóra sviðinu kl. 20.30.  Mæting 10-15 mín. áður.  Klæðnaður þar er "eftir veðri" þ.e. vera vel klæddar því það er kalt á útisviðinu.

Laugardagur 5. september kl. 12, mæting í Tónlistarskólann á Þórustíg, upphitun fyrir tónleikana okkar.  Syngjum í Íþróttaakademíunni á sýningunni Reykjanes 2009 kl. 13.  Tónleikar í Bíósal Duushúsa kl. 14.  Klæðnaður eins og hver vill, snyrtilegar og sumarlegar .....helst í pilsi til að sveifla og trefill með fyrir sveifluna í "Sveiinu"!  Stóra sviðið um kvöldið tónleikar með KKK og hljómsveit, mæting í KK-salinn kl. 20.45, mæting við útisvið kl. 21.30.  Hljóðprufa líklega kl. 18.  Klæðnaður lopapeysur og gallabuxur.

Sunnudagur 6. september.  Tónleikar með fleiri kórum og einsöngvurum á Suðurnesjum í sal Fjölbrautaskólans kl. 16. Mæting ?__________________.  Það verður rennsli/generalprufa á sunnudeginum, líklega kl. 13.  Klæðnaður kórbúningurinn okkar.

 

Kæru söngsystur, framundan er mikið "húllum hæ".  Verum samtaka og skemmtum okkur í þessum ólíku verkefnum.  Mætum stundvíslega og munum eftir að láta raddformenn vita ef við getum ekki mætt á réttum tíma.  Í öllum verkefnunum nema í Bíósalnum megum við hafa nótur á tónleikunum, höfum þær í svartri möppu.  Æfum okkur heima.  Höfum með okkur eitthvað að drekka á æfingarnar.  Förum vel með okkur og njótum söngveislunnar sem við erum þátttakendur í .

12.08.2009 13:26

Æfingar hafnar fyrir Ljósanótt

Þá eru æfingar hafnar fyrir Ljósanótt, en fyrsta æfing var á mánudagskvöld, 10. ágúst.  Nokkuð góð mæting var miðað við árstíma.  Næsta æfing verður í kvöld kl. 19.30 og svo áfram alla mánudaga og miðvikudaga fram að Ljósanótt.  Það lítur út fyrir að það verði nóg að gera hjá Kvennakórnum á Ljósanótt, en nú þegar er ákveðið að kórinn syngi á vinnustofutónleikum með Guðmundi Rúnari Lúðvíkssyni fimmtudagskvöldið 3. september, í Duushúsum að venju á laugardeginum 5. september og á sunnudeginum 6. september tekur kórinn þátt í tónlistarveislu þar sem fjöldi tónlistarfólks mun koma fram.  Auk þessa hefur verið rætt um að kórinn komi fram á útisviði bæði á föstudags- og laugardagskvöld en það hefur ekki verið endanlega ákveðið.  
Undanfarin ár hefur verið sett upp sölutjald við Hafnargötuna þar sem Kvennakórinn hefur verið með fjáröflun, s.s. flóamarkað og vöfflusölu.  Þar sem svona mikið verður að gera hjá kórkonum í söngnum hefur verið ákveðið að kórinn verði ekki með sölutjald að þessu sinni.

25.06.2009 09:47

Æfingar fyrir Ljósanótt

Æfingar fyrir Ljósanótt munu hefjast 10. ágúst sem er fyrr en áætlað var þar sem kórinn verður með töluvert af nýju efni, bæði á sunnudeginum í Keflavíkurkirkju og á vinnustofutónleikunum með Guðmundi Rúnari, auk þess sem þarf að fara yfir efnið sem verður á tónleikum kórsins á laugardeginum.   Það sem kórinn syngur með Guðmundi
verður allt einraddað og ekki þarf að læra textana utanað.  Textarnir verða sendir með tölvupósti og diskum með tónlistinni verður dreift á næstu dögum þannig að konur geti verið búnar að læra okkar laglínur áður en æfingar hefjast, þá ætti ekki að þurfa miklar æfingar fyrir það.  Við þurfum að læra nýtt efni fyrir tónleikana á sunnudeginum og þurfum við einhvern tíma til að æfa það.  Svo eru konur hvattar til að halda við lögunum okkar og sérstaklega textunum í sumar, þá þarf minni tíma til að fara yfir það fyrir Ljósanótt.

19.06.2009 11:01

Ljósanótt

Það verður nóg að gera hjá Kvennakór Suðurnesja á Ljósanótt sem verður haldin í 10. sinn dagana 3.-6. september 2009.  Kórinn mun væntanlega syngja á laugardeginum að venju, en auk þess hefur Guðmundur Rúnar Lúðvíksson myndlistar- og tónlistarmaður beðið kórinn að syngja með honum í nokkrum lögum eftir hann ásamt hljómsveit á vinnustofutónleikum við upphaf Ljósanætur þann 3. september kl. 21.  Stjórn kórsins hefur ákveðið að verða við þeirri beiðni og munu kórkonur fljótlega fá sendan disk með lögunum ásamt textum til að hlusta á í sumar og síðan verða æfingar í ágúst.  Auk þess hefur Arnór, organisti í Keflavíkurkirkju óskað eftir nærveru kórsins í kirkjunni á sunnudeginum 6. september ásamt öllum kórum á svæðinu.
Æfingar fyrir prógrammið á laugardeginum verða 24., 26. og 31. ágúst og 2. september, en væntanlega verða fleiri æfingar fyrir hin atriðin en ekki er komin tímasetning á þær.

25.05.2009 23:29

Vinnudagur nr. 3

Þá er búið að mála æfingasalinn, spurning hvort þarf að fara aðra umferð yfir gólfið.  Enn á eftir að fara í gegnum töluvert af nótum og því verður vinnukvöld aftur miðvikudaginn 27. maí kl. 19Allar að mæta sem geta!

22.05.2009 11:06

Annar vinnudagur 25. maí

Það var vaskur hópur fólks sem mætti í æfingaaðstöðu kvennakórsins í Listasmiðjunni í gær.  Þeir fyrstu voru mættir um níuleytið og var strax hafist handa við að tæma salinn svo að hægt væri að rífa teppaflísar af gólfinu.  Þegar þær voru farnar af kom í ljós að undir þeim voru dúkaflísar sem voru einnig látnar fjúka.  Einnig var gömlum skáp og veggplötum hent út.  Á meðan karlarnir og nokkrar konur unnu við þetta tóku hinar konurnar til við að flokka nótnasafn kórsins, en það er orðið töluvert stórt og mikil vinna að fara í gegnum það.  Þar sem veðrið var frábært var ákveðið að hætta uppúr hádegi og hittast aftur á mánudagskvöld 25. maí kl. 19.  Þá verður haldið áfram að flokka nóturnar auk þess sem æfingasalur verður málaður.  Nú mæta allir sem vettlingi geta valdið!

Flettingar í dag: 19
Gestir í dag: 18
Flettingar í gær: 88
Gestir í gær: 55
Samtals flettingar: 63751
Samtals gestir: 15529
Tölur uppfærðar: 7.5.2024 02:53:51
##sidebar_two##

Tenglar