Kvennakór Suðurnesja

Afmælisdagur:

22. febrúar 1968

Um:

Æfingar mánudaga (raddæfingar) í Tónlistarskólanum í Garði og miðvikudaga í KK-salnum, Vesturbraut 17-19, Reykjanesbæ kl. 19:30

Kennitala:

591071-0259

Færslur: 2012 Apríl

24.04.2012 20:18

Vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja

Kvennakór Suðurnesja fagnar vori með tónleikum í Bíósal Duushúsa mánudaginn 30. apríl og fimmtudaginn 3. maí. Tónleikarnir hefjast kl. 20 báða dagana. Á tónleikunum flytur kórinn úrval íslenskra og erlendra laga sem senda sumaryl í hjörtu þeirra sem á hlýða. Þar á meðal eru tvö lög eftir Hrafnhildi Bryndísi Rafnsdóttur sem er félagi í kvennakórnum. Einnig munu einsöngvarar úr röðum kórsins flytja nokkur lög, en það eru þær Birta Rós Arnórsdóttir, Steinunn Björg Ólafsdóttir og Una María Bergmann.

Helgina 19. - 20. maí ætlar kórinn síðan að halda í ferðalag á Snæfellsnes og munu kórkonur ylja Snæfellingum með söng sínum auk þess að skoða sig um á þessu fallega svæði.

Stjórnandi kórsins er Dagný Þórunn Jónsdóttir og meðleikari á píanó er Geirþrúður Fanney Bogadóttir.

Miðaverð á tónleikana er 2.000 kr. við innganginn en hægt er að kaupa miða í forsölu á 1.500 kr. hjá kórkonum. Einnig er hægt að hringja og panta miða í síma 8974776 og 8987744 eða senda tölvupóst á netfangið kvennakorsudurnesja@gmail.com.

16.04.2012 23:40

Æfing í Bíósal Duushúsa

Það verður æfing í Bíósal Duushúsa miðvikudaginn 18. apríl kl. 19:00.
  • 1
Flettingar í dag: 9
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 54
Gestir í gær: 21
Samtals flettingar: 62407
Samtals gestir: 15110
Tölur uppfærðar: 23.4.2024 09:13:24
##sidebar_two##

Tenglar