Kvennakór Suðurnesja

Afmælisdagur:

22. febrúar 1968

Um:

Æfingar mánudaga (raddæfingar) í Tónlistarskólanum í Garði og miðvikudaga í KK-salnum, Vesturbraut 17-19, Reykjanesbæ kl. 19:30

Kennitala:

591071-0259

Færslur: 2008 Nóvember

29.11.2008 16:08

Kvennakórar landsins heiðra Jón Ásgeirsson á áttræðisafmælinu

Kvennakórar landsins heiðra Jón Ásgeirsson tónskáld í tilefni áttræðisafmælis hans
Sunnudaginn 30. nóvember (fyrsta sunnudag í aðventu) munu nokkrir kvennakórar víðsvegar af á landinu frumflytja jólalagið Ég heyrði þau nálgast, eftir tónskáldið Jón Ásgeirsson. Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra, fékk Jón Ásgeirsson til að semja  jólalag fyrir kvennakóra landsins, í tilefni af áttræðisafmæli hans þann 11. október og heiður er að fá að flytja lagið nú á afmælisári hans. Textinn við lagið er eftir Snorra Hjartarson.

Lag Jóns Ásgeirssonar verður frumflutt í eftirfarandi kirkjum 30. nóvember:
Smelltu hérna til að skoða nánar

Suðurnes          Kvennakór Suðurnesja      Ytri-Njarðvíkurkirkja     kl. 11.00

Kópavogur         Kvennakór Kópavogs        Kópavogskirkja           kl. 11.00

Garðabær          Kvennakór Garðabæjar     Vídalínskirkja               kl. 11.00

Hafnarfjörður     Kvennakór Öldutúns          Fríkirkjan Hafnarfirði    kl. 13.00

Hafnarfjörður     Kvennakór Hafnarfjarðar   Víðistaðakirkja             kl. 20.00

Reykjavík           Léttsveit Reykjavíkur          Bústaðakirkja              kl. 11.00

Reykjavík           Kvennakór Reykjavíkur      Breiðholtskirkja           kl. 20.00

Reykjavík           Kvennakórinn Seljurnar     Seljakirkja                   kl. 20.00

 

Gígjan, landssamband íslenskra kvennakóra

Fyrir 1990 voru ekki nema fimm kvennakórar starfandi á landinu. Gróskan hefur verið mikil síðan þá og á stofnfundi Gígjunnar, landssambandi íslenskra kvennakóra 5. apríl 2003, gengu 17 kórar í sambandið. Í dag eru aðildarkórar sambandsins 28 talsins og telja meðlimir þess á annað þúsund konur. Gífurlegur kraftur er fólginn í þessum kvennahópum og samstaðan er mikil. Markmið samtakanna er m.a. að efla starfsemi og samstarf kvennakóra og heldur Gígjan úti vefsetri www.gigjan.is þar sem birtar eru heimildir um starfsemi aðildarkóranna, lög sambandsins, upplýsingar um útgáfu geisladiska, fréttir af tónleikum og öðrum uppákomum aðildarkóranna, tenglar á tónlistarvefi og annað gagnlegt efni.

 

Tónverkasjóður Gígjunnar

Tónverkasjóður Gígjunnar var stofnaður á aðalfundi sambandsins í október. Markmið og tilgangur Tónverkasjóðsins er að efla og styrkja íslenska kvennakóra. Til að ná þessu markmiði mun Tónverkasjóður Gígjunnar fá tónskáld til að semja tónverk fyrir kvennakóra landsins og þannig efla fjölbreytni og úrval tónlistar sem kvennakórar eiga kost á að flytja. Gert er ráð fyrir að kórarnir flytji verkið hverju sinni, hver í sinni sveit, á svipuðum tíma, t.d. í kringum 24. október (kvennafrídagurinn), 8. mars (alþjóðlegur baráttudagur kvenna), 19. júní (kosningaréttur íslenskra kvenna) eða um jól og páska. Jólalag Jóns Ásgeirssonar er fyrsta verkið sem Tónverkasjóðurinn hefur kostað.

 

25.11.2008 08:09

Samæfing miðvikudag 26. nóvember í Keflavíkurkirkju

Samæfing verður í Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 26. nóvember kl. 19.00 vegna aðventutónleikanna 14. desember.

Messa í Ytri-Njarðvíkurkirkju sunnudaginn 30. nóvember.  Mæting í kirkjuna kl. 10.00.

24.11.2008 10:49

Laufabrauðsgerð

Síðastliðinn laugardag safnaðist fríður flokkur kórkvenna ásamt börnum og barnabörnum saman í mötuneyti Slippsins í Njarðvík í þeim tilgangi að búa til laufabrauð, en það er árleg fjáröflun Kvennakórs Suðurnesja.  Einstaka eiginmenn (eða kórbullur eins og við köllum þá) kíktu við og aðstoðuðu jafnvel við laufabrauðsgerðina, það væri nú gaman að sjá meira af þeim í þessu næst. emoticon Það er alltaf góð stemmning þegar kórinn fer í laufabrauðsgerð, mikið spjallað og hlustað á tónlist og fær jólatónlistin að fljóta með þó aðventan sé ekki byrjuð, því það að gera laufabrauð tilheyrir náttúrulega jólaundirbúningnum.  Pöntuð var pítsa fyrir hópinn í hádeginu og rann hún ljúflega niður.  Allt gekk þetta vel, þær fyrstu mættu kl. 9 um morguninn og var byrjað að skera út, en steikingunni seinkaði aðeins þar sem feitin sem var pöntuð kom ekki með kökunum og varð því að redda því öðruvísi.  Sigurjón bakari bjargaði því og lét okkur hafa feiti, og var byrjað að steikja á fullu um ellefuleytið.  Það var góð mæting og því var búið að skera allt út fyrir fjögur og búið að steikja fyrir fimm, alls 1200 kökur sem margar hverjar eru listaverk, svo flottur er útskurðurinn.  Oft hefur verið búið að selja allt fyrirfram, enda margir fastakúnnar, en eitthvað hefur það gengið hægar fyrir sig í þetta sinn og því töluvert eftir enn.  Þær sem eiga eftir að selja geta tekið kökur á æfingu í kvöld.
Kærar þakkir til allra sem mættu, sérstaklega til allra krakkanna sem voru sko ekkert smá dugleg. emoticon

Fleiri myndir í myndaalbúmi, einnig tvær nýjar í albúmi frá afhendingu Súlunnar.

21.11.2008 13:37

Laufabrauðsdagurinn

Muna eftir laufabrauðsdeginum á morgun, laugardag 22. nóvember.emoticon  Við byrjum kl. 9.

20.11.2008 22:20

Kvennakór Suðurnesja fékk Menningarverðlaun Reykjanesbæjar, Súluna 2008!

Afhending Súlunnar, menningarverðlauna Reykjanesbæjar fór fram í kvöld og hlutu Kvennakór Suðurnesja og Leikfélag Keflavíkur hana að þessu sinni.  Við í Kvennakórnum erum að sjálfsögðu mjög ánægðar með verðlaunin og þökkum kærlega fyrir okkur. 
Kórinn hélt upp á fjörutíu ára afmæli á árinu, en það hefur verið mikil gróska í kórstarfinu undanfarin ár.  Í október á síðasta ári tók kórinn þátt í kórakeppni á Ítalíu með frábærum árangri.  Haldnir voru stórglæsilegir afmælistónleikar í febrúar ásamt Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og einsöngvurunum Bjarna Thor og Dagný Jónsdóttur stjórnanda kórsins.
Kórinn tók einnig þátt í landsmóti kvennakóra sem haldið var á Höfn í Hornafirði í vor, auk þess að koma fram á Ljósanótt í Reykjanesbæ, Menningarnótt í Reykjavík og við fleiri tækifæri.
Til hamingju með verðlaunin og frábært starf, Kvennakór Suðurnesja!

Fleiri myndir í myndaalbúmi.

19.11.2008 22:06

Laufabrauð á laugardaginn

Næstkomandi laugardag, 22. nóvember verður laufabrauðsdagur hjá Kvennakór Suðurnesja.  Nú mætum við allar galvaskar með fjölskylduna og tökum þetta með trompi!  Það munar um allar hendur og þótt þið getið ekki verið allan daginn þá endilega að koma hluta úr deginum.  Taka með bretti, hnífa og þær sem eiga laufabrauðsjárn taka þau að sjálfsögðu með og ekki má gleyma góða skapinu.  emoticon
10 kökur kosta kr. 1.400,- og 5 kökur kr. 700,- reynum að selja sem mest fyrirfram.

19.11.2008 13:27

Dagskráin fram að jólum

Þessi síða hefur verið frekar daufleg, en nú er ætlunin að bæta úr því.  Það kemur fljótlega smá yfirlit yfir það sem hefur verið í gangi hjá kórnum síðasta árið eða kannski rúmlega það.

En við byrjum á að koma með nokkra punkta varðandi dagskrána fram að jólum:

Fimmtudaginn 20. nóvember syngur kórinn við afhendingu Menningarverðlauna Reykjanesbæjar, Súlunnar.  Mæting í Bíósal Duushúsa kl. 17.00.  Athöfnin hefst kl. 18.00.

30. nóvember syngur kórinn við messu í Ytri-Njarðvíkurkirkju kl. 11.  Þar verður m.a. frumflutt lag eftir Jón Ásgeirsson í tilefni af áttræðisafmæli hans á þessu ári, en Jón samdi lagið sérstaklega fyrir aðildarkóra Gígjunnar, landssambands kvennakóra, og munu fleiri kvennakórar víðsvegar á landinu frumflytja lagið þennan dag.

13. desember verður sungið fyrir eldri borgara á Garðvangi og Hlévangi, tímasetning sennilega kl. 14.30, nánar um það síðar.

14. desember. Aðventutónleikar í Keflavíkurkirkju, þar sem kórinn syngur ásamt Kirkjukór Keflavíkurkirkju, Karlakór Keflavíkur og Gospelkórnum Kikk.  Tónleikarnir hefjast kl. 20Fyrsta samæfing verður í Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 26. nóvember kl. 19.

Þó svo að tímasetningar séu ekki allar komnar á hreint, þá eru dagsetningarnar pottþéttar.


  • 1
Flettingar í dag: 4
Gestir í dag: 3
Flettingar í gær: 463
Gestir í gær: 160
Samtals flettingar: 61204
Samtals gestir: 14868
Tölur uppfærðar: 18.4.2024 03:09:53
##sidebar_two##

Tenglar