Kvennakór Suðurnesja

Afmælisdagur:

22. febrúar 1968

Um:

Æfingar mánudaga (raddæfingar) í Tónlistarskólanum í Garði og miðvikudaga í KK-salnum, Vesturbraut 17-19, Reykjanesbæ kl. 19:30

Kennitala:

591071-0259

15.08.2011 20:35

Æfingar fyrir Ljósanótt

Kvennakór Suðurnesja tekur að venju þátt í Ljósanótt 2011 
Kórinn mun syngja í Víkingaheimum föstudagskvöldið 2. september. Um er að ræða viðburð þar sem nokkrir aðilar taka þátt en skipulagið er í höndum stelpnanna í Spiral hönnun. Nánari upplýsingar verða gefnar á fyrstu æfingu. Laugardaginn 3. september syngur kórinn síðan í Bíósal Duushúsa kl. 16.30. Æfing / upphitun verður sama dag kl. 11 í Listasmiðjunni.
Æfingar fyrir Ljósanótt verða 22., 24., 29. og 31. ágúst kl. 20 í Listasmiðjunni. Vinsamlega takið með nótur vorsins ef þið þurfið að rifja upp. Sem dæmi um lög sem gott er að rifja upp má nefna Dagný, Bahama, Draumalandið, Angel, Mambo, Make a joyful, Frjáls eins og fuglinn og Feel good.


Hugmyndir fyrir lagaval og fjáraflanir
Eins og flestar kórkonur vita er stefnan tekin á Færeyjar í vor og því þurfum við að fara að "negla" lagaval og íhuga leiðir til fjáröflunar. Þar með eruð þið hvattar til þess að koma hugmyndum áleiðis til stjórnar.

26.05.2011 22:00

Aðalfundur Kvennakórs Suðurnesja

Aðalfundur Kvennakórs Suðurnesja verður haldinn mánudaginn 30. maí 2011 kl. 20 í aðstöðu kórsins í Listasmiðjunni á Ásbrú.

Venjuleg aðalfundarstörf, kosning stjórnar, lagabreytingar og Færeyjaferð.

14.05.2011 12:27

Vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja

Kvennakór Suðurnesja heldur vortónleika mánudaginn 16. maí í Bíósal Duushúsa í Reykjanesbæ og sunnudaginn 22. maí í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Hefjast tónleikarnir kl. 20 bæði kvöldin.

Kórinn tók þátt í landsmóti kvennakóra sem haldið var á Selfossi 29. apríl - 1. maí þar sem rúmlega 600 konur úr 23 kórum tóku þátt. Dagskrá tónleikanna litast aðeins af landsmótinu þar sem nokkur laganna sem sungin voru á landsmótinu eru meðal þess sem er í tónleikaskránni en þar má nefna Flóaperlur sem eru lög eftir tónskáld úr Flóanum; Í dag skein sól eftir Pál Ísólfsson, Draumalandið eftir Sigfús Einarsson og Bahama eftir Ingólf Þórarinsson, auk hins fallega lags Angel eftir KK og ítalska lagsins Time to say goodbye eða Con te partirò sem söngvarinn Andrea Bocelli gerði vinsælt fyrir nokkrum árum. Á dagskránni verða einnig fleiri falleg íslensk og erlend lög sem og dægurlög í léttari kantinum, gospeltónlist, söngleikjatónlist og kirkjuleg verk.  Það er því fjölbreytileikinn sem ræður för og eiga tónleikagestir von á góðri skemmtun.

Stjórnandi Kvennakórs Suðurnesja er söngkonan Dagný Þórunn Jónsdóttir og meðleikari á píanó er Geirþrúður Fanney Bogadóttir. Einnig leikur Eiríkur Rafn Stefánsson á trompet.

Miðaverð á tónleikana er kr. 1500, frítt fyrir 12 ára og yngri. Miðasala verður við innganginn.

Eins og áður sagði tók Kvennakór Suðurnesja þátt í glæsilegu landsmóti kvennakóra fyrir stuttu en það var Jórukórinn á Selfossi sem sá um framkvæmd mótsins að þessu sinni. Þetta var áttunda landsmót kvennakóra sem haldið hefur verið en þau eru haldin á þriggja ára fresti. Næsta landsmót verður haldið á Akureyri árið 2014 og mun kórinn væntanlega taka þátt þar. Þess má geta að Kvennakór Suðurnesja hélt landsmót í Reykjanesbæ árið 2002. Vorið 2012 ráðgerir kórinn að fara í tónleikaferð til Færeyja og er undirbúningur að hefjast fyrir þá ferð.

18.04.2011 23:32

Upptaka frá vortónleikum 2008

Læt fylgja hér með tengil á upptöku frá vortónleikum 2008, þ.e. árið sem landsmótið var haldið á Höfn í Hornafirði, við sungum einmitt tvö af þessum lögum á landsmótinu:

STE-004.wav

18.04.2011 23:29

Dagskrá landsmóts 2011

LANDSMÓT KVENNAKÓRA Á SELFOSSI 
29. APRÍL - 1. MAÍ 2011

FÖSTUDAGUR 29. APRÍL

17.30 - 18.30  Móttaka í Sólvallaskóla, afhending mótsgagna, kórar hitta tengiliði og fá búningsaðstöðu

18.30 - 20.00  Kvöldverður í Íþróttahúsi Sólvallaskóla (þar sem allar máltíðir verða)

         Setning landsmótsins

Á söguslóð kvennakóra  Erindi frá Vox Feminae - Sigríður Anna Ellerup og Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir

 20.00 - 23.00  Óvissuferð - farið frá Sólvallaskóla

LAUGARDAGUR 30. APRÍL

09.00 - 11.00  Sameiginleg æfing í Iðu (Íþróttahús Fjölbrautaskóla Suðurlands). Allir  þátttakendur

11.00 - 11.30  Félagsfundur Gígjunnar í Iðu. Allir þátttakendur

11.30 - 12.30  Hádegisverður

12.30 - 13.30  Frjáls tími

Kórstjórnendur funda í Iðu og formenn kóranna funda í Iðu

13.30 - 15.00  Æfing í vinnuhópum (nánari upplýsingar í mótsblaði)

15.00 - 15.15  Kaffi á æfingastöðunum

15.15 - 16.00  Frjáls tími, undirbúningur fyrir tónleika  

16.00 - 17.30  Tónleikar kóranna í Iðu og Selfosskirkju

                       Sjá skiptingu milli tónleikastaða á www.jorukorinn.is og www.gigjan.is

17.30 - 19.30  Frjáls tími, undirbúningur fyrir kvöldið

19.30 - 01.00  Hátíðarkvöldverður og dansleikur í Íþróttahúsi Sólvallaskóla

SUNNUDAGUR 1. MAÍ

09.30 - 11.30  Æfing í vinnuhópum

11.30 - 12.30  Hádegisverður

12.30 - 14.00  Æfing í Iðu með Stórsveit Suðurlands. Allir þátttakendur

14.00 - 15.00  Undirbúningur fyrir tónleika

15.00 - 16.30  Hátíðartónleikar í Iðu

16.30 - 17.30  Kveðjukaffi í Íþróttahúsi Sólvallaskóla, móti slitið.

18.04.2011 23:19

Fréttabréf frá formanni

Kæru kórkonur.

Þið eruð frábærar og skemmtilegar konur að vera með og framundan verða skemmtilegir tímar hjá okkur.

Landsmót kvennakóra á Selfossi verður 29. apríl - 1. maí. Dagskrá mótsins er hér á síðunni.

Ákveðið hefur verið að niðurgreiða þátttöku kórkvenna á landsmótið um 3.500 kr.  Greiðsluseðill sem konur fá fljótlega verður 10.000 kr.

Gist verður á Austurvegi 28, Selfossi, helgin kostar pr. konu 12.415.-  innifalið er gisting í 2 nætur með morgunverði.  

Þær konur sem geta farið á eigin bifreið vinsamlegast látið formann vita svo hægt sé að ákveða hver fer með hverjum og auðvitað borga farþegar í bensínkostnaði með bílstjóra.

Þann 7. maí kl. 16 eða 17 munum við syngja í Víkingaheimum fyrir Delta- Kappa-Gamma, sem er félagsskapur kvenna í mennta- og menningargeiranum.

Vortónleikar verða 16. maí kl. 20.00 í Bíósal, Duushúsum og 22. maí kl. 20.00 í Ytri-Njarðvíkurkirkju.

Frábært væri ef við gætum allar tekið þátt í þessum uppákomum.

Mánudagskvöldið 30. maí verður aðalfundur kórsins í aðstöðu okkar í Listasmiðju kl. 20.00, venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar og  breyting á stjórn.

1. júní er svo lokakvöld vetrarstarfsins. Hildur formaður ætlar að bjóða heim til sín í mat. Eins og venjulega borgar hver kona þátttökugjald sem fer eftir því hvað eldað verður. Heitur pottur er á staðnum fyrir þær sem vilja. Endilega takið frá þetta kvöld.

Nú er allt þetta skemmtilega upptalið og komið að nauðsynlegu hlutunum. Nú þurfa konur að fara að hringja í styrktarmeðlimi kórsins og bjóða þeim að styrkja kórinn eins og venjulega og fá tvo miða á tónleika í staðinn. Einnig að hringja í fyrirtæki og bjóða þeim styrktarlínu í söngskrá.  Miðar á tónleika  og skrár yfir styrktarmeðlimi verða tilbúnir mánudaginn 18. apríl og hvet ég konur til að vera duglegar að að hringja og fá styrki. Nýjar konur í kórnum þurfa að fá þrjá nýja styrktarmeðlimi, þetta er gert svo fjölgi í styrktarhópnum.

Kær kveðja Hildur H. form.

07.04.2011 06:14

Raddæfing hjá messó

Raddæfing verður hjá messó mánudaginn 11. apríl.

02.04.2011 11:17

Raddæfing hjá alt

Raddæfing verður hjá alt mánudaginn 4. apríl.

23.03.2011 22:45

Raddæfing hjá sópran

Raddæfing verður hjá sópran mánudaginn 28. mars.

20.03.2011 08:33

Raddæfing hjá messó

Þar sem fyrirhuguðu skemmtikvöldi sem átti að halda 26. mars hefur verið frestað, verður breyting á æfingunni mánudaginn 21. mars, það verður raddæfing hjá messó en ekki allar raddir eins og til stóð.

14.03.2011 05:58

Raddæfing hjá alt

Raddæfing verður hjá alt mánudaginn 14. mars. Á miðvikudaginn mætir Geirþrúður og spilar með okkur á æfingunni.

05.03.2011 10:44

Raddæfing hjá sópran

Þar sem raddæfing féll niður síðasta mánudag verður raddæfing hjá sópran mánudaginn 7. mars.

24.02.2011 19:01

Raddæfing hjá sópran

Það verður raddæfing hjá sópran mánudaginn 28. febrúar.

17.02.2011 21:46

Raddæfing hjá messó

Það verður raddæfing hjá messó mánudaginn 21. febrúar.
Flettingar í dag: 32
Gestir í dag: 29
Flettingar í gær: 88
Gestir í gær: 55
Samtals flettingar: 63764
Samtals gestir: 15540
Tölur uppfærðar: 7.5.2024 05:21:59
##sidebar_two##

Tenglar