Kvennakór Suðurnesja

Afmælisdagur:

22. febrúar 1968

Um:

Æfingar mánudaga (raddæfingar) í Tónlistarskólanum í Garði og miðvikudaga í KK-salnum, Vesturbraut 17-19, Reykjanesbæ kl. 19:30

Kennitala:

591071-0259

Færslur: 2009 Desember

28.12.2009 12:19

Þrettándagleði

Árleg þrettándagleði í Reykjanesbæ verður haldin 6. janúar við Ægisgötu.

Dagskrá hefst kl. 18:00 með skrúðgöngu frá Myllubakkaskóla að hátíðarsvæði.

Álfabrenna, tónlist, söngur, álfakóngur og drottning, púkar, Grýla, Leppalúði og jólasveinar.
Karlakór Keflavíkur, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, skátarnir, Björgunarsveitin Suðurnes og Léttsveit og Trommusveit Tónlistarskólans taka þátt í dagskránni.

Heitt kakó í boði Reykjanesbæjar.

Flugeldasýning á vegum Björgunarsveitarinnar Suðurnes.

Ath. æfing fyrir álfasönginn verður í Tónlistarskólanum við Austurgötu mánudaginn 4. janúar kl. 20.

21.12.2009 13:57

Gleðileg jól!

Kvennakór Suðurnesja sendir kórfélögum, velunnurum og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um gleðilega jólahátíð með kæru þakklæti fyrir frábært samstarf og stuðning á árinu sem er að líða.  Megi nýtt ár færa ykkur öllum blessun og frið.

 

01.12.2009 11:26

Jólatónleikar Kvennakórs Suðurnesja

Kvennakór Suðurnesja heldur jólatónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju fimmtudaginn 3. desember kl. 20.  Á tónleikunum mun kórinn að sjálfsögðu syngja jólalög úr ýmsum áttum og fleiri falleg lög.  Dagný Þórunn Jónsdóttir, stjórnandi kórsins syngur einsöng og félagar úr kórnum munu einnig flytja einsöngslög og dúetta, en það eru þær Sigurbjörg Hjálmarsdóttir, Birta Rós Arnórsdóttir, Steinunn Björg Ólafsdóttir og Guðbjörg Guðmundsdóttir.  Meðleikari á píanó er Geirþrúður Fanney Bogadóttir, Marína Ósk Þórólfsdóttir leikur á þverflautu og Salka Kristjánsdóttir leikur á selló.  Almennt miðaverð er kr. 1500, en kr. 1000 fyrir eldri borgara og frítt er inn fyrir 12 ára og yngri.  Miðasala verður við innganginn.

Það er í nógu að snúast þessa dagana hjá kórfélögum, en síðastliðinn sunnudag söng kórinn við messu í Árbæjarkirkju.  Þá er nóg að gera í fjáröflunarstarfinu, en kórinn hefur verið með sölubás í Skansinum síðustu þrjár helgar og mun verða þar um næstu helgi, 5.-6. desember kl. 12-18 báða dagana.  Þar eru á boðstólum jólakort og afmælisdagatöl með myndum eftir listakonuna Hildi Harðar og ýmislegt fleira skemmtilegt.  Kórinn fór í sína árlegu laufabrauðsgerð seinnipartinn í nóvember, var afraksturinn m.a. seldur í Skansinum og er laufabrauðið nú uppselt. 

Suðurnesjamenn eru hvattir til að mæta á tónleikana og eiga notalega stund með Kvennakór Suðurnesja á aðventunni.  Svo er tilvalið að kíkja við í Skansinum um helgina og sjá hvað er í boði þar.

  • 1
Flettingar í dag: 34
Gestir í dag: 13
Flettingar í gær: 49
Gestir í gær: 15
Samtals flettingar: 62532
Samtals gestir: 15147
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 11:17:24
##sidebar_two##

Tenglar