Kvennakór Suðurnesja

Afmælisdagur:

22. febrúar 1968

Um:

Æfingar mánudaga (raddæfingar) í Tónlistarskólanum í Garði og miðvikudaga í KK-salnum, Vesturbraut 17-19, Reykjanesbæ kl. 19:30

Kennitala:

591071-0259

Færslur: 2009 Mars

31.03.2009 13:07

Æfing fellur niður miðvikudaginn 1. apríl.

Æfing fellur niður á morgun, miðvikudaginn 1. apríl.  Næsta æfing verður mánudaginn 6. apríl.  Þetta er ekki aprílgabb. emoticon

17.03.2009 13:29

Akureyrarferð aflýst

Því miður hefur Akureyrarferð Kvennakórs Suðurnesja verið aflýst þar sem ekki var nægileg þátttaka í öllum röddum.  Vonandi getum við heimsótt söngsystur okkar á Akureyri síðar. 
Einnig hefur orðið breyting varðandi opnun listasalarins í Listasmiðjunni, en hún verður laugardaginn 25. apríl í tengslum við Frístundahátíð í Reykjanesbæ, en ekki á sumardaginn fyrsta eins og fyrirhugað var.  Áætlað er að kórinn syngi við opnunina ef nógu margar konur geta mætt, einnig er ætlunin að syngja í Ytri-Njarðvíkurkirkju á sumardaginn fyrsta.  Á æfingu í gærkvöldi voru konur beðnar að skrá sig ef þær gætu mætt á þessa viðburði og var þátttakan frekar dræm, vonandi glæðist hún eitthvað.
Vortónleikar kórsins haldast óbreyttir, í Safnaðarheimilinu í Sandgerði 27. apríl kl. 20.00 og í Bíósal Duushúsa í Reykjanesbæ 29. apríl kl. 20.00.
Konur eru hvattar til að mæta vel á æfingar en mæting hefur verið vægast sagt slæm í sumum röddum og erfitt að hafa æfingar ef jafnvel mæta aðeins ein eða tvær konur í einhverjum röddum eins og komið hefur fyrir undanfarið.  Það bitnar þannig á öllum kórnum ef einhverjar mæta illa.  Kórinn hefur átt góðu gengi að fagna síðustu árin og margt skemmtilegt í gangi og því væri leiðinlegt ef starfsemin dytti niður vegna lélegrar mætingar.  Rífum þetta nú upp og höldum frábæra tónleika í vor og höfum gaman af þessu!

09.03.2009 23:33

Fréttabréf frá stjórninni

Fréttabréf  9. mars 2009

Þá er komið að því sem allir hafa beðið eftir, sem sagt fréttabréfi.  Takk fyrir það sem liðið er af vetri í nýjum húsakynnum.  Þar sem stólarnir eru ekki þeir bestu og ekki hægt að útvega okkur aðra frítt hefur stjórnin ákveðið að kaupa stóla frá bankastofnun í Reykjavík (veit ekki hverri) á kr. 1.500 stk. og koma þeir í hús á miðvikudaginn.

Áætluð er sameiginleg opnun á listasalnum hér í húsinu með þátttöku allra í húsinu 23.apríl og munum við því taka þar nokkur lög, mjög gott að sem flestar sjái sér fært að mæta.  Helst allar.

Tónleikahaldið okkar að vori verður í Safnaðarheimilinu í Sandgerði 27.apríl kl. 20.00 og í Bíósal 29.apríl kl. 20.00.  Síðan verður farið í tónleikaferðalag til Akureyrar 1. maí með rútu frá SBK kl. 10.00 en stjórnin mun bjóða upp á rútuna (ha ha) en allan annan kostnað munu kórkonur borga sjálfar þ.m.t. gistingu og fæði.  Gisting kostar kr. 8.900 pr. mann fyrir 2 nætur og áætlað að matur á laugardagskvöldi kosti ca. 4.000 kr. á mann.  Kórkonur endilega bjóðið kórbullum með. Ef næg þáttaka fæst ekki í röddum verður ekki farið.  Tónleikarnir verða 2. maí í Laugaborg.

Mjög áríðandi er að mæta á allar æfingar og sérstaklega á mánudögum því Geira mun koma og spila undir á mánudögum fram að sumarfríi sem verður eftir tónleikaferðalagið.

Svo eins og venjulega verðum við að vera duglegar að læra texta og mæta á æfingar.  Því við erum bestar.

Kær kveðja stjórnin.

08.03.2009 22:45

Æfing með undirleik mánudag 9. mars.

Mánudaginn 9. mars verður fyrsta æfing með undirleik fyrir vortónleika.  Geirþrúður verður með okkur á æfingunni og því mikilvægt að konur mæti vel.  Stefnt er að því að Geirþrúður verði á mánudagsæfingum héðan í frá fram að tónleikum.
  • 1
Flettingar í dag: 66
Gestir í dag: 28
Flettingar í gær: 49
Gestir í gær: 15
Samtals flettingar: 62564
Samtals gestir: 15162
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 14:29:53
##sidebar_two##

Tenglar