Kvennakór Suðurnesja

Afmælisdagur:

22. febrúar 1968

Um:

Æfingar mánudaga (raddæfingar) í Tónlistarskólanum í Garði og miðvikudaga í KK-salnum, Vesturbraut 17-19, Reykjanesbæ kl. 19:30

Kennitala:

591071-0259

Færslur: 2011 Nóvember

29.11.2011 15:47

Jólatónleikar Kvennakórs Suðurnesja

Kvennakór Suðurnesja heldur tvenna jólatónleika þetta árið. Fyrri tónleikarnir verða í Ytri-Njarðvíkurkirkju mánudaginn 5. desember og hinir síðari í Listasal Duushúsa miðvikudaginn 7. desember. Tónleikarnir hefjast kl. 20 bæði kvöldin.
 Á dagskránni eru jólalög úr ýmsum áttum, bæði íslensk og erlend. Meðal annars mun kórinn flytja lag Suðurnesjatónskáldsins Sigurðar Sævarssonar, Þeir hringdu hljómþungum klukkum, en það var valið jólalag RÚV árið 2010. Einnig verða fluttar jólaperlur eins og Hin fyrstu jól eftir Ingibjörgu Þorbergs, Hvít jól eftir Irving Berlin, Ave Maria eftir J.S. Bach og Leppur, Skreppur og Leiðindaskjóða eftir Gunnar Þórðarson við texta Halla, Ladda og Gísla Rúnars, auk fleiri fallegra og skemmtilegra jólalaga sem munu án efa koma  tónleikagestum í jólaskapið.
Stjórnandi Kvennakórs Suðurnesja er Dagný Þórunn Jónsdóttir og meðleikari á píanó er Geirþrúður Fanney Bogadóttir.
Miðasala er hafin hjá kórkonum og er miðaverð í forsölu kr. 1500. Hægt er að panta miða í forsölu í síma 898 7744 og 897 4776 eða með tölvupósti á netfangið inadora@simnet.is. Einnig verða seldir miðar við innganginn og verður miðaverð þá kr. 2000. Frítt er fyrir börn 14 ára og yngri.

18.11.2011 10:22

Kvennakór Suðurnesja er kominn í jólaskap

Að venju er nóg að gera hjá Kvennakór Suðurnesja. Kórinn hélt skemmtikvöld laugardaginn 29. október og fékk þá Karlakór Keflavíkur í heimsókn. Þetta var frábær skemmtun sem hófst á því að kórfélagar ásamt mökum gæddu sér á dýrindis kvöldverði sem kvennakórskonur reiddu fram. Að því loknu voru ýmis skemmtiatriði þar sem kórarnir sungu nokkur lög hvor um sig og auðvitað sungu líka allir saman. Farið var með gamanmál, farið í leiki og að lokum skelltu gestir sér á dansgólfið og tóku sporið. Skemmtunin tókst í alla staði mjög vel en þetta var einnig fjáröflun fyrir Kvennakór Suðurnesja sem er að safna í ferðasjóð vegna fyrirhugaðs söngferðalags.

Kórkonur eru komnar í jólaskap enda löngu byrjaðar að æfa jólalögin fyrir aðventutónleika kórsins sem verða haldnir mánudaginn 5. desember og miðvikudaginn 7. desember.  Á tónleikunum verða fluttar margar jólaperlur, þar á meðal jólalag RÚV árið 2010, "Þeir hringdu hljómþungum klukkum" eftir Suðurnesjatónskáldið Sigurð Sævarsson. Tónleikarnir verða nánar kynntir síðar.

Fastur liður í undirbúningi aðventunnar hjá Kvennakór Suðurnesja er laufabrauðsgerðin. Um næstu helgi ætla kórkonur að hittast ásamt fjölskyldum sínum og skera út og steikja 1500 laufabrauð, en þetta er ein stærsta fjáröflun kórsins. Laufabrauð kvennakórsins hefur verið mjög vinsælt og því um að gera fyrir þá sem hafa áhuga á að ná sér í laufabrauð að hafa samband við kórkonur. Hægt er að panta laufabrauð með tölvupósti.

02.11.2011 14:16

Æfingar fram að jólatónleikum

Fram að jólatónleikum verða æfingar fyrir allar raddir bæði mánudaga og miðvikudaga .
Einnig verður löng laugardagsæfing 12. nóvember frá kl. 10:00 til 14:00. Gott er að taka með nesti til að hafa í hádegishléi. Geirþrúður kemur svo og spilar með kórnum eftir hádegi.
Laugardaginn 19. nóvember ætla kórkonur að skera og steikja laufabrauðið. Vinsamlegast takið daginn frá, þar sem reiknað er með að allar konur mæti í þessa sameiginlegu fjáröflun kórsins.

  • 1
Flettingar í dag: 66
Gestir í dag: 28
Flettingar í gær: 49
Gestir í gær: 15
Samtals flettingar: 62564
Samtals gestir: 15162
Tölur uppfærðar: 26.4.2024 14:29:53
##sidebar_two##

Tenglar