Kvennakór Suðurnesja

Afmælisdagur:

22. febrúar 1968

Um:

Æfingar mánudaga (raddæfingar) í Tónlistarskólanum í Garði og miðvikudaga í KK-salnum, Vesturbraut 17-19, Reykjanesbæ kl. 19:30

Kennitala:

591071-0259

Færslur: 2012 September

05.09.2012 21:17

Opin æfing hjá Kvennakór Suðurnesja.

Þegar sumri lýkur fara farfuglarnir að hefja sig til flugs og það sama má segja um söngfuglana í Kvennakór Suðurnesja. Kórkonur eru reyndar aðeins búnar að hita upp fyrir veturinn með söng á Ljósanótt en kórinn tók þátt í tónlistardagskrá í Duushúsum. Kvennakór Suðurnesja hefur tekið þátt í hátíðinni frá upphafi enda er þetta frábær vettvangur fyrir menningarstarf og skemmtileg leið til að kveðja sumarið og hefja vetrarstarfið. Kvennakórinn tók líka þátt í Sandgerðisdögum en þar sáu kórkonur um kósýkvöld kvenna sem var haldið í sundlauginni í Sandgerði og tókst það frábærlega. Góð mæting var enda flott dagskrá í boði. Bláa lónið var með kynningu á vörum sínum, lesið var úr bókum frá bókaútgáfunni Lesstofunni, glæsilegt happdrætti með flottum vinningum, söngur og tískusýning þar sem kórkonur brugðu sér í hlutverk fyrirsæta og sýndu föt frá hönnuðum af Suðurnesjum.

Vetrarstarfið hefst síðan af fullum krafti mánudaginn 10. september en þá verður haldin opin æfing í Listasmiðjunni, Keilisbraut 773 á Ásbrú en þar er kórinn með æfingaaðstöðu. Kvennakórinn hvetur allar konur sem hafa áhuga á söng til að kíkja við því þó það séu margar skemmtilegar og söngelskar konur í kórnum er nóg pláss fyrir fleiri. Kórkonur ætla líka að slá upp Pálínuboði og verður eflaust ýmislegt girnilegt á borðum. Æfingin hefst kl. 20.

Kvennakór Suðurnesja er elsti starfandi kvennakór á landinu en hann var stofnaður 22. febrúar 1968 og verður því 45 ára í vetur. Dagskrá vetrarins er ekki fullmótuð en gert er ráð fyrir að kórinn komi fram á tónleikum fyrir jólin auk þess sem haldnir verða vortónleikar. Í febrúar fara kórkonur í æfingabúðir í Skálholti. Ýmislegt fleira skemmtilegt er á döfinni sem verður nánar kynnt síðar.

Kórinn æfir á mánudögum kl. 20 og raddæfingar eru á miðvikudögum á sama tíma.

  • 1
Flettingar í dag: 17
Gestir í dag: 8
Flettingar í gær: 36
Gestir í gær: 9
Samtals flettingar: 62466
Samtals gestir: 15127
Tölur uppfærðar: 25.4.2024 09:05:47
##sidebar_two##

Tenglar