Kvennakór Suðurnesja

Afmælisdagur:

22. febrúar 1968

Um:

Æfingar mánudaga (raddæfingar) í Tónlistarskólanum í Garði og miðvikudaga í KK-salnum, Vesturbraut 17-19, Reykjanesbæ kl. 19:30

Kennitala:

591071-0259

18.04.2011 23:19

Fréttabréf frá formanni

Kæru kórkonur.

Þið eruð frábærar og skemmtilegar konur að vera með og framundan verða skemmtilegir tímar hjá okkur.

Landsmót kvennakóra á Selfossi verður 29. apríl - 1. maí. Dagskrá mótsins er hér á síðunni.

Ákveðið hefur verið að niðurgreiða þátttöku kórkvenna á landsmótið um 3.500 kr.  Greiðsluseðill sem konur fá fljótlega verður 10.000 kr.

Gist verður á Austurvegi 28, Selfossi, helgin kostar pr. konu 12.415.-  innifalið er gisting í 2 nætur með morgunverði.  

Þær konur sem geta farið á eigin bifreið vinsamlegast látið formann vita svo hægt sé að ákveða hver fer með hverjum og auðvitað borga farþegar í bensínkostnaði með bílstjóra.

Þann 7. maí kl. 16 eða 17 munum við syngja í Víkingaheimum fyrir Delta- Kappa-Gamma, sem er félagsskapur kvenna í mennta- og menningargeiranum.

Vortónleikar verða 16. maí kl. 20.00 í Bíósal, Duushúsum og 22. maí kl. 20.00 í Ytri-Njarðvíkurkirkju.

Frábært væri ef við gætum allar tekið þátt í þessum uppákomum.

Mánudagskvöldið 30. maí verður aðalfundur kórsins í aðstöðu okkar í Listasmiðju kl. 20.00, venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar og  breyting á stjórn.

1. júní er svo lokakvöld vetrarstarfsins. Hildur formaður ætlar að bjóða heim til sín í mat. Eins og venjulega borgar hver kona þátttökugjald sem fer eftir því hvað eldað verður. Heitur pottur er á staðnum fyrir þær sem vilja. Endilega takið frá þetta kvöld.

Nú er allt þetta skemmtilega upptalið og komið að nauðsynlegu hlutunum. Nú þurfa konur að fara að hringja í styrktarmeðlimi kórsins og bjóða þeim að styrkja kórinn eins og venjulega og fá tvo miða á tónleika í staðinn. Einnig að hringja í fyrirtæki og bjóða þeim styrktarlínu í söngskrá.  Miðar á tónleika  og skrár yfir styrktarmeðlimi verða tilbúnir mánudaginn 18. apríl og hvet ég konur til að vera duglegar að að hringja og fá styrki. Nýjar konur í kórnum þurfa að fá þrjá nýja styrktarmeðlimi, þetta er gert svo fjölgi í styrktarhópnum.

Kær kveðja Hildur H. form.

Flettingar í dag: 93
Gestir í dag: 34
Flettingar í gær: 74
Gestir í gær: 29
Samtals flettingar: 64678
Samtals gestir: 15891
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 12:52:02
##sidebar_two##

Tenglar