Kvennakór Suðurnesja

Afmælisdagur:

22. febrúar 1968

Um:

Æfingar mánudaga (raddæfingar) í Tónlistarskólanum í Garði og miðvikudaga í KK-salnum, Vesturbraut 17-19, Reykjanesbæ kl. 19:30

Kennitala:

591071-0259

01.09.2011 14:32

Ljósanótt 2011

Ljósanótt 2011 er haldin í Reykjanesbæ dagana 1. - 4. september og tekur Kvennakór Suðurnesja þátt í hátíðinni nú sem endranær.
Það sem einkennir Ljósanótt í ár meira en Ljósanótt síðustu ára eru öll þau stóru og yfirgripsmiklu verkefni sem alfarið eru unnin af heimamönnum. Í ár eru fjölmörg stór atriði á dagskrá Ljósanætur sem alfarið eru sett saman og unnin af heimafólki.

Eitt þessara atriða verður "Klikkaður kærleikur" sem settur verður upp í Víkingaheimum föstudagskvöldið 2. september kl. 21.
Klikkaður kærleikur er kynnt sem tískusýning og tónleikar í Víkingaheimum, öðruvísi sýning þar sem teflt verður saman tónlist, leiklist, myndlist og hönnun.
Þeir sem koma fram eru: Deep Jimi and the Zep Creams, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Lína Rut og Spiral hönnun svo eitthvað sé nefnt. Húsið opnar kl. 20:30 og eru allir hjartanlega velkomnir.
Afrakstur kvöldsins mun renna í sérstakan styrktarsjóð sem nefnist "Kærleiksbörn" en hann hefur verið stofnaður með það fyrir augum að styrkja börn m.a. vegna veikinda eða fötlunar sinnar.
Sérstök einkennisfígúra Klikkaðs kærleika verður hinn svokallaði "Happy face" sem er skapaður af listakonunni Línu Rut. Mun fígúran m.a. prýða boli sem seldir verða á hátíðinni til styrktar Kærleiksbörnum.

Kvennakór Suðurnesja mun einnig syngja á tónleikum í Bíósal Duushúsum laugardaginn 3. september kl. 16.30, en tónleikasyrpa verður í Duushúsum á laugardaginn frá kl. 14.30 - 17.30 en auk Kvennakórsins koma þar fram Karlakór Keflavíkur, Félag harmonikkuunnenda, Söngsveit Suðurnesja, brasilíska söngkonan Jussanam Da Silva og Söngsveitin Víkingarnir.

Margt fleira verður á dagskrá hátíðarinnar alla dagana sem hún stendur, s.s. tónleikar, listasýningar, íþróttakeppnir, bíla- og bifhjólasýning, tískusýningar, dansleikir og margt fleira að ógleymdri hinni glæsilegu flugeldasýningu og tendrun ljósanna á Berginu á laugardagskvöldinu.

Dagskrá Ljósanætur í heild sinni er á heimasíðu hátíðarinnar, ljosanott.is.



Flettingar í dag: 102
Gestir í dag: 38
Flettingar í gær: 74
Gestir í gær: 29
Samtals flettingar: 64687
Samtals gestir: 15895
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 13:44:10
##sidebar_two##

Tenglar