Kvennakór Suðurnesja

Afmælisdagur:

22. febrúar 1968

Um:

Æfingar mánudaga (raddæfingar) í Tónlistarskólanum í Garði og miðvikudaga í KK-salnum, Vesturbraut 17-19, Reykjanesbæ kl. 19:30

Kennitala:

591071-0259

21.04.2009 19:48

Vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja

Nú líður að vori og söngfuglarnir farnir að láta í sér heyra og sama er að segja um konurnar í Kvennakór Suðurnesja.  Kórinn mun halda tvenna vortónleika á næstunni, mánudaginn 27. apríl í Safnaðarheimilinu í Sandgerði og miðvikudaginn 29. apríl í Bíósal Duushúsa í Reykjanesbæ og hefjast báðir tónleikarnir kl. 20.  Það verður alþjóðlegur blær yfir tónleikunum að þessu sinni því auk nokkurra íslenskra laga og syrpu úr Mamma Mia söngleiknum sem samanstendur af lögum með hinni sænsku ABBA sveit, mun kórinn flytja lög frá Filippseyjum, Rússlandi, Serbíu, Japan, Kenýa og Suður-Ameríku. 

Auk þess að syngja á tónleikunum mun kórinn einnig syngja við messu í Ytri-Njarðvíkurkirkju á sumardaginn fyrsta kl. 14 og laugardaginn 25. apríl syngur kórinn á Frístundahátíð í sal Listasmiðjunnar í Ásbrú (áður Vallarheiði) kl. 15, en Kvennakórinn hefur fengið aðstöðu fyrir starfsemi sína í Listasmiðjunni ásamt fleiri hópum listamanna.  Einnig mun kórinn syngja í Keili kl. 15.30 sama dag.

Stjórnandi kórsins er Dagný Þórunn Jónsdóttir og meðleikarar á tónleikunum verða Geirþrúður Fanney Bogadóttir á píanó, Jón Árni Benediktsson á bassa og Þorvaldur Halldórsson á trommur.

Það er fátt betra til að létta lundina á erfiðum tímum en tónlist og er það reynsla kórkvenna að söngurinn og félagsskapurinn í kórnum sé góð leið til að gleyma áhyggjum hversdagsins og auka vellíðan.  Með þetta að leiðarljósi er áhersla lögð á létta og skemmtilega tónlist á tónleikunum og til þess að leggja sitt af mörkum svo að sem flestir getið notið þess að lyfta sér aðeins upp býður Kvennakórinn ókeypis aðgang á tónleikana. 


Flettingar í dag: 43
Gestir í dag: 20
Flettingar í gær: 74
Gestir í gær: 29
Samtals flettingar: 64628
Samtals gestir: 15877
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 07:14:42
##sidebar_two##

Tenglar