Kvennakór Suðurnesja
    <language>is</language>
Vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
      <description>Kvennakór Suðurnesja heldur vortónleika í Ytri-Njarðvíkurkirkju mánudaginn 6. maí og í Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 8. maí og hefjast tónleikarnir kl. 20:00 bæði kvöldin.  Dagskráin verður létt og skemmtileg en þar má finna ýmsa gamla slagara, bæði íslenska og erlenda auk nokkurra nýrri dægurlaga. Meðal annars heiðra kórkonur minningu Ellýjar Vilhjálms og syngja fjögur af lögum hennar í útsetningu Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Einnig mun kórinn flytja lagið "Breyttur söngur" sem Þóra Marteinsdóttir samdi við ljóð Huldu í tilefni af 10 ára afmæli Gígjunnar, landssambands íslenskra kvennakóra þann 5. apríl sl.    Í Kvennakór Suðurnesja, sem átti 45 ára afmæli í febrúar, eru konur úr flestum sveitarfélögum á Suðurnesjum. Stjórnandi kórsins er Dagný Þórunn Jónsdóttir og meðleikari á píanó er Geirþrúður Fanney Bogadóttir. Auk hennar leika á tónleikunum þau Harpa Jóhannsdóttir á bassa, Högni Þorsteinsson á gítar og Þorvaldur Halldórsson á trommur.  Miðaverð er 2000 kr. við innganginn en aðeins 1500 kr. í forsölu sem fer fram hjá kórfélögum og á netfanginu kvennakorsudurnesja@gmail.com. </description>
Æfing fellur niður vegna veðurs
      <description>Æfing fellur niður í kvöld, miðvikudag 6. mars, vegna veðurs og færðar.</description>
Tónfræðitími
      <description>Tónfræðitími verður fyrir kórkonur í kvöld, mánudag kl. 20:00 í Tónlistarskólanum á Þórustíg í Njarðvík. Taka þarf með: Skriffæri, glósubækur/blöð, góða skapið.</description>
Gleðileg jól
      <description>Kvennakór Suðurnesja sendir kórfélögum, velunnurum og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um gleðilega jólahátíð með kæru þakklæti fyrir frábært samstarf og stuðning á árinu sem er að líða.  Megi nýtt ár færa ykkur öllum blessun og frið.</description>
Jólatónleikar kóra til styrktar Velferðarsjóði Suðurnesja
      <description>  Fimmtudaginn 6. desember verða haldnir stórtónleikar í Stapanum til styrktar Velferðarsjóði Suðurnesja. Á tónleikunum koma fram 6 kórar af Suðurnesjum, en það eru Eldey, kór eldri borgara, Karlakór Keflavíkur, kór Keflavíkurkirkju, Kvennakór Suðurnesja, Sönghópur Suðurnesja og Söngsveitin Víkingar. Kórarnir munu syngja nokkur lög hver í sínu lagi og sameinast svo í lokin í einn stóran kór. Stjórnendur kóranna eru Arnór Vilbergsson, Helga Bryndís Magnúsdóttir, Dagný Þórunn Jónsdóttir, Magnús Kjartansson og Steinar Guðmundsson. Tónleikarnir hefjast kl. 20. Miðasala verður við innganginn og er miðaverði stillt í hóf, aðeins 1000 kr. Allur ágóði af tónleikunum rennur til Velferðarsjóðs Suðurnesja, einnig verður tekið við frjálsum framlögum í sjóðinn.  Á haustdögum kom upp sú hugmynd hjá kórkonum í Kvennakór Suðurnesja að fá aðra kóra til samstarfs við sig til að halda stóra jólatónleika. Þeir kórar sem haft var samband við tóku vel í erindið og þróaðist hugmyndin síðan út í að tónleikarnir yrðu haldnir til styrktar Velferðarsjóði Suðurnesja. Það er gleðilegt að allir þessir kórar skuli taka höndum saman og láta gott af sér leiða með þessum hætti.  Það hefur verið nóg um að vera hjá Kvennakór Suðurnesja í haust og vetur. Kórkonur höfðu umsjón með kósýkvöldi kvenna í sundlauginni í Sandgerði í ágúst. Kvöldið var liður í Sandgerðisdögum og tókst það frábærlega. Góð mæting var enda flott dagskrá í boði. Bláa lónið var með kynningu á vörum sínum, lesið var úr bókum frá bókaútgáfunni Lesstofunni, glæsilegt happdrætti með flottum vinningum, söngur og tískusýning þar sem kórkonur brugðu sér í hlutverk fyrirsæta og sýndu föt frá hönnuðum af Suðurnesjum.   Kórinn tók síðan þátt í tónlistardagskrá í Duushúsum á Ljósanótt í Reykjanesbæ í byrjun september. Kvennakór Suðurnesja hefur tekið þátt í hátíðinni frá upphafi enda er þetta frábær vettvangur fyrir menningarstarf og skemmtileg leið til að kveðja sumarið og hefja vetrarstarfið.   Vetrarstarfið hófst síðan af fullum krafti mánudaginn 10. september en þá var haldin opin æfing í Listasmiðjunni, Keilisbraut 773 á Ásbrú en þar er kórinn með æfingaaðstöðu. Kórkonur slógu þá upp Pálínuboði og buðu konum sem vildu kynna sér starfsemi kórsins að kíkja í heimsókn.  Þann 13. október skelltu kórkonur sér í óvissuferð um Reykjanesið undir leiðsögn Helgu Ingimundardóttur sem sagði ýmsar skemmtilegar sögur af svæðinu. Eftir að hafa keyrt Reykjaneshringinn var farið í heimsókn í verksmiðju Kaffitárs þar sem starfsemi fyrirtækisins var skoðuð og léttar veitingar bornar fram. Að því loknu var snæddur kvöldverður.  Skemmtikvöld Kvennakórs Suðurnesja var haldið 17. nóvember í Samkomuhúsinu í Sandgerði. Þá fékk kórinn félaga úr Karlakór Keflavíkur og Eldey, kór eldri borgara í heimsókn ásamt mökum. Boðið var upp á veitingar, söng, leiki, dans og gamanmál þannig að úr varð hin besta skemmtun.  Um síðustu helgi var síðan komið að hinum árlega laufabrauðsdegi kórsins en þá komu kórkonur saman og skáru út og steiktu laufabrauð í hundruðatali. Þetta er liður í fjáröflun kórsins en laufabrauðið hjá kvennakórnum er sívinsælt.  Næsta sunnudag kemur kórinn svo fram á aðventuhátíð eldri borgara sem Kvenfélag Keflavíkur stendur fyrir í Kirkjulundi. Auk alls þessa er svo undirbúningur fyrir stóru tónleikana í fullum gangi.  Kvennakór Suðurnesja hvetur alla sem vettlingi geta valdið að taka nú höndum saman og styrkja Velferðarsjóð Suðurnesja og hjálpa með því bágstöddum fjölskyldum fyrir jólin. Um leið og tónleikagestir láta gott af sér leiða fá þeir að eiga notalega stund og hlýða á ljúfa tónlist. Tónleikarnir verða eins og áður sagði í Hljómahöllinni í Stapa, fimmtudaginn 6. desember og hefjast þeir kl. 20.</description>
Opin æfing hjá Kvennakór Suðurnesja.
      <description>    Þegar sumri lýkur fara farfuglarnir að hefja sig til flugs og það sama má segja um söngfuglana í Kvennakór Suðurnesja. Kórkonur eru reyndar aðeins búnar að hita upp fyrir veturinn með söng á Ljósanótt en kórinn tók þátt í tónlistardagskrá í Duushúsum. Kvennakór Suðurnesja hefur tekið þátt í hátíðinni frá upphafi enda er þetta frábær vettvangur fyrir menningarstarf og skemmtileg leið til að kveðja sumarið og hefja vetrarstarfið. Kvennakórinn tók líka þátt í Sandgerðisdögum en þar sáu kórkonur um kósýkvöld kvenna sem var haldið í sundlauginni í Sandgerði og tókst það frábærlega. Góð mæting var enda flott dagskrá í boði. Bláa lónið var með kynningu á vörum sínum, lesið var úr bókum frá bókaútgáfunni Lesstofunni, glæsilegt happdrætti með flottum vinningum, söngur og tískusýning þar sem kórkonur brugðu sér í hlutverk fyrirsæta og sýndu föt frá hönnuðum af Suðurnesjum.    Vetrarstarfið hefst síðan af fullum krafti mánudaginn 10. september en þá verður haldin opin æfing í Listasmiðjunni, Keilisbraut 773 á Ásbrú en þar er kórinn með æfingaaðstöðu. Kvennakórinn hvetur allar konur sem hafa áhuga á söng til að kíkja við því þó það séu margar skemmtilegar og söngelskar konur í kórnum er nóg pláss fyrir fleiri. Kórkonur ætla líka að slá upp Pálínuboði og verður eflaust ýmislegt girnilegt á borðum. Æfingin hefst kl. 20.  Kvennakór Suðurnesja er elsti starfandi kvennakór á landinu en hann var stofnaður 22. febrúar 1968 og verður því 45 ára í vetur. Dagskrá vetrarins er ekki fullmótuð en gert er ráð fyrir að kórinn komi fram á tónleikum fyrir jólin auk þess sem haldnir verða vortónleikar. Í febrúar fara kórkonur í æfingabúðir í Skálholti. Ýmislegt fleira skemmtilegt er á döfinni sem verður nánar kynnt síðar.  Kórinn æfir á mánudögum kl. 20 og raddæfingar eru á miðvikudögum á sama tíma.</description>
Aðalfundur Kvennakórs Suðurnesja
      <description>Miðvikudaginn 23. maí  kl. 20:00-22:00 verður aðalfundur Kvennakórs Suðurnesja haldinn í aðstöðu kórsins í Listasmiðjunni að Ásbrú.    Dagskrá aðalfundar:    1.      Skýrsla stjórnar  Ritari les fundargerð síðasta fundar.  Formaður gefur skýrslu um starfsemi á liðnu starfsári.  2.      Reikningar  Gjaldkeri leggur fram endurskoðaða reikninga og skýrir þá.  3.      Umræða um skýrslu og reikninga.  4.      Formenn nefnda skýra frá störfum þeirra:  Ferðanefnd  Skemmtinefnd    Matarnefnd  Búninganefnd  Kaffinefnd              5.   Tillögur og lagabreytingar.  6.   Ákvörðun mánaðargjalds.  7.   Kosning stjórnar og varamanna.  8.   Kosning tveggja skoðunarmanna reikninga.  9.   Kosið í nefndir.  Auk þeirra sem að ofan eru taldar verður kosið í fjáröflunarnefnd, húsnefnd og laufabrauðsnefnd.            10.   Önnur mál.  Lagabreytingar og aðrar tillögur frá kórfélögum skulu berast stjórn eigi síðar en tveimur vikum fyrir aðalfund.    Stefnumótun Kvennakórs Suðurnesja er í höndum kórfélaga, aðalfundar og þeirra aðila sem kosnir eru til stjórnunar- og nefndarstarfa, því er mjög mikilvægt að allar konur mæti á aðalfundinn.    Vinsamlegast sendið allar tillögur eða hugmyndir að lagabreytingum á netfangið  inadorah@gmail.com fyrir miðvikudaginn 23. maí 2012.     </description>
Kvennakór Suðurnesja á Snæfellsnesi
      <description>Kvennakór Suðurnesja verður á ferð um Snæfellsnes helgina 19. - 20. maí og býður til tónleika í Grundarfjarðarkirkju laugardaginn 19. maí kl. 16.00. Einnig mun kórinn taka lagið í Vatnasafninu í Stykkishólmi sunnudaginn 20. maí kl. 13:30.  Kórinn flytur úrval íslenskra og erlendra laga sem senda sumaryl í hjörtun og einsöngvarar úr röðum kórsins koma fram.Stjórnandi Kvennakórs Suðurnesja er Dagný Þórunn Jónsdóttir og meðleikari á píanó er Geirþrúður Fanney Bogadóttir.  Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis.   </description>
Vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
      <description>Kvennakór Suðurnesja fagnar vori með tónleikum í Bíósal Duushúsa mánudaginn 30. apríl og fimmtudaginn 3. maí. Tónleikarnir hefjast kl. 20 báða dagana. Á tónleikunum flytur kórinn úrval íslenskra og erlendra laga sem senda sumaryl í hjörtu þeirra sem á hlýða. Þar á meðal eru tvö lög eftir Hrafnhildi Bryndísi Rafnsdóttur sem er félagi í kvennakórnum. Einnig munu einsöngvarar úr röðum kórsins flytja nokkur lög, en það eru þær Birta Rós Arnórsdóttir, Steinunn Björg Ólafsdóttir og Una María Bergmann.  Helgina 19. - 20. maí ætlar kórinn síðan að halda í ferðalag á Snæfellsnes og munu kórkonur ylja Snæfellingum með söng sínum auk þess að skoða sig um á þessu fallega svæði.  Stjórnandi kórsins er Dagný Þórunn Jónsdóttir og meðleikari á píanó er Geirþrúður Fanney Bogadóttir.  Miðaverð á tónleikana er 2.000 kr. við innganginn en hægt er að kaupa miða í forsölu á 1.500 kr. hjá kórkonum. Einnig er hægt að hringja og panta miða í síma 8974776 og 8987744 eða senda tölvupóst á netfangið kvennakorsudurnesja@gmail.com.</description>
Æfing í Bíósal Duushúsa
      <description>Það verður æfing í Bíósal Duushúsa miðvikudaginn 18. apríl kl. 19:00.</description>
Raddæfingar og páskafrí
      <description>Miðvikudaginn 28. mars verður raddæfing hjá alt og messó en raddæfing fyrir sópran verður mánudaginn 2. apríl. Eftir það er komið páskafrí. Byrjum svo aftur hressar og endurnærðar eftir páskana miðvikudaginn 11. apríl.</description>
Raddæfing hjá sópran
      <description>Raddæfing verður hjá sópran miðvikudaginn 14. mars.</description>
Engin æfing í kvöld
      <description>Það verður engin æfing í kvöld, mánudag 20. febrúar. Á miðvikudag eiga allar raddir að mæta.</description>
Ferð í Skálholt 18.-19. febrúar 2012
      <description>Og þá er loksins komið að því, Skálholt um helgina.  Yndislegar sælustundir sem við höfum átt þar í Kvennakór Suðurnesja. Ég á ekki von á öðru en við höldum uppteknum hætti og njótum okkar, bæði við leik og störf. Allur aðbúnaður er þar til fyrirmyndar. Góður matur, gott andrúmsloft og yndislega fallegur staður. Það er nú svo sem engu logið eins og ein af okkar fyrrverandi formönnum orðaði það svo skemmtilega þegar hún leiddi hópinn í Skálholt: ,,Velkomar í fegurstu sveitir landsins" (Helga Jakobsdóttir). En hún var auðvitað ekkert hlutdræg.En að ferðinni.Mæting kl. 9:30 á planinu hjá Sýslumanni. Gjaldið er 12.500 kr. fyrir gistingu og mat, og vil ég biðja konur um að hafa peninginn passlegan meðferðis svo ekki þurfi að gefa til baka. Ég mun rukka í rútunni á leiðinni. Sjóður kórsins sér um að borga rútuna. Bus4you.  Það sem þarf að taka með er:  Nóturnar ykkar, öll lögin sem við erum komar með.Rúmföt, þ.e. sængurver, koddaver og lak.Inniskó, hlýja peysu, útiföt og góða skó fyrir þær sem ætla í göngutúra, náttföt, tannkrem og eyrnatappa.Gleraugun.Betri föt fyrir hátíðarkvöldverðinn (svona passlega fín)Slikkerí og drykki fyrir kvöldskemmtun. En athugið að léttvín, bjór og gos er selt með matnum, svo ekki taka með ykkur fram í borðsal. Bara í setustofuna.Það er hægt að borga drykkina í matsalnum með korti.       Þema:  Multi-color.  Heimferð er áætluð kl. 17:00 á sunnudag.  Góða skapið, klæðir ykkur alltaf, svo ég þarf ekki að minnast á það.  Dagskráin er eins og venjulega, borða - syngja - elska.  Skemmtinefndin er á fullu swingi.  Ég óska okkur öllum góðrar ferðar og skemmtunar.  Við ykkur hinar sem komist ekki með okkur að þessu sinni vil ég segja: Reynið að gefa ykkur tíma til að kíkja aðeins á lögin og textana, því við komum svo öflugar til baka.  Fegursta blóm jarðarinnar er brosið.  Bestu kveðjur frá formanni.</description>
Raddæfing hjá messó
      <description>Raddæfing verður hjá messó miðvikudaginn 8. febrúar.</description>
Raddæfing hjá sópran
      <description>Það verður raddæfing hjá sópran miðvikudaginn 25. janúar.</description>
Raddæfing hjá alt
      <description>Raddæfing verður hjá alt miðvikudaginn 11. janúar.</description>
Gleðileg jól
Jólatónleikar Kvennakórs Suðurnesja
      <description>Kvennakór Suðurnesja heldur tvenna jólatónleika þetta árið. Fyrri tónleikarnir verða í Ytri-Njarðvíkurkirkju mánudaginn 5. desember og hinir síðari í Listasal Duushúsa miðvikudaginn 7. desember. Tónleikarnir hefjast kl. 20 bæði kvöldin. Á dagskránni eru jólalög úr ýmsum áttum, bæði íslensk og erlend. Meðal annars mun kórinn flytja lag Suðurnesjatónskáldsins Sigurðar Sævarssonar, Þeir hringdu hljómþungum klukkum, en það var valið jólalag RÚV árið 2010. Einnig verða fluttar jólaperlur eins og Hin fyrstu jól eftir Ingibjörgu Þorbergs, Hvít jól eftir Irving Berlin, Ave Maria eftir J.S. Bach og Leppur, Skreppur og Leiðindaskjóða eftir Gunnar Þórðarson við texta Halla, Ladda og Gísla Rúnars, auk fleiri fallegra og skemmtilegra jólalaga sem munu án efa koma  tónleikagestum í jólaskapið.Stjórnandi Kvennakórs Suðurnesja er Dagný Þórunn Jónsdóttir og meðleikari á píanó er Geirþrúður Fanney Bogadóttir.Miðasala er hafin hjá kórkonum og er miðaverð í forsölu kr. 1500. Hægt er að panta miða í forsölu í síma 898 7744 og 897 4776 eða með tölvupósti á netfangið inadora@simnet.is. Einnig verða seldir miðar við innganginn og verður miðaverð þá kr. 2000. Frítt er fyrir börn 14 ára og yngri.  </description>
Kvennakór Suðurnesja er kominn í jólaskap
      <description>Að venju er nóg að gera hjá Kvennakór Suðurnesja. Kórinn hélt skemmtikvöld laugardaginn 29. október og fékk þá Karlakór Keflavíkur í heimsókn. Þetta var frábær skemmtun sem hófst á því að kórfélagar ásamt mökum gæddu sér á dýrindis kvöldverði sem kvennakórskonur reiddu fram. Að því loknu voru ýmis skemmtiatriði þar sem kórarnir sungu nokkur lög hvor um sig og auðvitað sungu líka allir saman. Farið var með gamanmál, farið í leiki og að lokum skelltu gestir sér á dansgólfið og tóku sporið. Skemmtunin tókst í alla staði mjög vel en þetta var einnig fjáröflun fyrir Kvennakór Suðurnesja sem er að safna í ferðasjóð vegna fyrirhugaðs söngferðalags. Kórkonur eru komnar í jólaskap enda löngu byrjaðar að æfa jólalögin fyrir aðventutónleika kórsins sem verða haldnir mánudaginn 5. desember og miðvikudaginn 7. desember.  Á tónleikunum verða fluttar margar jólaperlur, þar á meðal jólalag RÚV árið 2010, "Þeir hringdu hljómþungum klukkum" eftir Suðurnesjatónskáldið Sigurð Sævarsson. Tónleikarnir verða nánar kynntir síðar. Fastur liður í undirbúningi aðventunnar hjá Kvennakór Suðurnesja er laufabrauðsgerðin. Um næstu helgi ætla kórkonur að hittast ásamt fjölskyldum sínum og skera út og steikja 1500 laufabrauð, en þetta er ein stærsta fjáröflun kórsins. Laufabrauð kvennakórsins hefur verið mjög vinsælt og því um að gera fyrir þá sem hafa áhuga á að ná sér í laufabrauð að hafa samband við kórkonur. Hægt er að panta laufabrauð með tölvupósti.</description>
Æfingar fram að jólatónleikum
      <description>Fram að jólatónleikum verða æfingar fyrir allar raddir bæði mánudaga og miðvikudaga . Einnig verður löng laugardagsæfing 12. nóvember frá kl. 10:00 til 14:00. Gott er að taka með nesti til að hafa í hádegishléi. Geirþrúður kemur svo og spilar með kórnum eftir hádegi. Laugardaginn 19. nóvember ætla kórkonur að skera og steikja laufabrauðið. Vinsamlegast takið daginn frá, þar sem reiknað er með að allar konur mæti í þessa sameiginlegu fjáröflun kórsins.</description>
Raddæfing hjá messó
      <description>Raddæfing verður hjá messó miðvikudaginn 5. október kl. 20.</description>
Raddæfing hjá sópran
      <description>Raddæfing verður hjá sópran miðvikudaginn 21. september.</description>
Raddæfing hjá messó
      <description>Raddæfing verður hjá messó miðvikudaginn 14. september.</description>
Raddæfing hjá alt
      <description>Raddæfing verður hjá alt miðvikudaginn 7. september.</description>
Opin æfing
      <description>Kvennakór Suðurnesja býður konum á Suðurnesjum sem hafa áhuga á að syngja i kór á opna æfingu mánudagskvöldið 5. september kl. 20. Æfingar kórsins eru haldnar í Listasmiðjunni á Ásbrú á mánudögum kl. 20 og raddæfingar á sama tíma á miðvikudögum. Þær konur sem ekki komast á opnu æfinguna en hafa þó áhuga á að starfa með kórnum eru velkomnar til okkar á æfingu hvenær sem þær vilja.Það er ýmislegt framundan í vetur, haldnir verða jólatónleikar og vortónleikar, farið í æfingabúðir og næsta vor ætlar kórinn í söngferð til Færeyja.Kórinn tók þátt í Ljósanótt sem lýkur í dag. Á föstudagskvöldið var viðburðurinn "Klikkaður kærleikur" haldinn í Víkingaheimum og var eftirfarandi umfjöllun á vf.is:"Tískusýning á Suðurnesjafatnaði undir töfratónum þungarokks og kvennakórs sló í gegn í Víkingaheimum á Ljósanótt í Reykjanesbæ í gærkvöldi.Klikkaður kærleikur var nafn dagskrárinnar sem var hugmynd þeirra Spiral-systra Írisar Jónsdóttur og Ingunnar E. Yngvadóttur ásamt þeim Guðnýju Kristjánsdóttur og Davíð Óskarssyni en þau tvö síðastnefndu hafa verið tengd starfsemi Leikfélags Keflavíkur í langan tíma.Sýningarhópur Spiral hönnunar sýndi nýjan fatnað undir tónlist Deep Jimi en með þeim sem og einn og sér söng Kvennakór Suðurnesja. Umhverfið með Víkingaskipið Íslending var afskaplega skemmtilegt og gestir sem troðfylltu Víkingaheima skemmtu sér vel á þessari óvanalegu en skemmtilegu uppákomu."Á laugardaginn var tónleikasyrpan "Syngjandi sveifla" í Duushúsum þar sem kórinn söng fyrir troðfullum Bíósal.Það er því margt skemmtilegt sem kórinn tekur sér fyrir hendur og tilvalið fyrir söngglaðar konur að drífa sig í kórinn núna.</description>
Ljósanótt 2011
      <description> Ljósanótt 2011 er haldin í Reykjanesbæ dagana 1. - 4. september og tekur Kvennakór Suðurnesja þátt í hátíðinni nú sem endranær.Það sem einkennir Ljósanótt í ár meira en Ljósanótt síðustu ára eru öll þau stóru og yfirgripsmiklu verkefni sem alfarið eru unnin af heimamönnum. Í ár eru fjölmörg stór atriði á dagskrá Ljósanætur sem alfarið eru sett saman og unnin af heimafólki. Eitt þessara atriða verður "Klikkaður kærleikur" sem settur verður upp í Víkingaheimum föstudagskvöldið 2. september kl. 21. Klikkaður kærleikur er kynnt sem tískusýning og tónleikar í Víkingaheimum, öðruvísi sýning þar sem teflt verður saman tónlist, leiklist, myndlist og hönnun.Þeir sem koma fram eru: Deep Jimi and the Zep Creams, Kvennakór Suðurnesja, Leikfélag Keflavíkur, Lína Rut og Spiral hönnun svo eitthvað sé nefnt. Húsið opnar kl. 20:30 og eru allir hjartanlega velkomnir.Afrakstur kvöldsins mun renna í sérstakan styrktarsjóð sem nefnist "Kærleiksbörn" en hann hefur verið stofnaður með það fyrir augum að styrkja börn m.a. vegna veikinda eða fötlunar sinnar.Sérstök einkennisfígúra Klikkaðs kærleika verður hinn svokallaði "Happy face" sem er skapaður af listakonunni Línu Rut. Mun fígúran m.a. prýða boli sem seldir verða á hátíðinni til styrktar Kærleiksbörnum.  Kvennakór Suðurnesja mun einnig syngja á tónleikum í Bíósal Duushúsum laugardaginn 3. september kl. 16.30, en tónleikasyrpa verður í Duushúsum á laugardaginn frá kl. 14.30 - 17.30 en auk Kvennakórsins koma þar fram Karlakór Keflavíkur, Félag harmonikkuunnenda, Söngsveit Suðurnesja, brasilíska söngkonan Jussanam Da Silva og Söngsveitin Víkingarnir.  Margt fleira verður á dagskrá hátíðarinnar alla dagana sem hún stendur, s.s. tónleikar, listasýningar, íþróttakeppnir, bíla- og bifhjólasýning, tískusýningar, dansleikir og margt fleira að ógleymdri hinni glæsilegu flugeldasýningu og tendrun ljósanna á Berginu á laugardagskvöldinu.  Dagskrá Ljósanætur í heild sinni er á heimasíðu hátíðarinnar, ljosanott.is.   </description>
Lög sem hafa verið á dagskránni áður og verða aftur núna
      <description>Við komum til með að æfa nokkur lög í vetur sem við höfum sungið áður, þær sem eiga nótur að eftirfarandi lögum vinsamlega takið þær með á æfingu á mánudaginn:Spinna minniÞjóðlífsmyndinKrummavísurHvít jólLeppur, Skreppur, LeiðindaskjóðaJóla, jólasveinnJesu bambinoJólasveinninn minnTökum þátt í að spara kostnað fyrir kórinn og grömsum í gömlu nótunum!</description>
Mætingar á Ljósanótt
      <description>Miðvikudagur: Æfing í Listasmiðju kl. 20.00.Fimmtudagur: Æfing í Víkingaheimum kl. 18.15Föstudagur: Æfing í Listasmiðju kl. 19.50 og förum síðan í Víkingaheima. "Klikkaður kærleikur" hefst kl. 21.Laugardagur: Æfing í Listasmiðju kl. 11.00. Mæting í Bíósal Duushúsa kl. 16.15.</description>
Æfingar fyrir Ljósanótt
      <description>Kvennakór Suðurnesja tekur að venju þátt í Ljósanótt 2011    Kórinn mun syngja í Víkingaheimum föstudagskvöldið 2. september. Um er að ræða viðburð þar sem nokkrir aðilar taka þátt en skipulagið er í höndum stelpnanna í Spiral hönnun. Nánari upplýsingar verða gefnar á fyrstu æfingu. Laugardaginn 3. september syngur kórinn síðan í Bíósal Duushúsa kl. 16.30. Æfing / upphitun verður sama dag kl. 11 í Listasmiðjunni. Æfingar fyrir Ljósanótt verða 22., 24., 29. og 31. ágúst kl. 20 í Listasmiðjunni. Vinsamlega takið með nótur vorsins ef þið þurfið að rifja upp. Sem dæmi um lög sem gott er að rifja upp má nefna Dagný, Bahama, Draumalandið, Angel, Mambo, Make a joyful, Frjáls eins og fuglinn og Feel good.    Hugmyndir fyrir lagaval og fjáraflanir Eins og flestar kórkonur vita er stefnan tekin á Færeyjar í vor og því þurfum við að fara að "negla" lagaval og íhuga leiðir til fjáröflunar. Þar með eruð þið hvattar til þess að koma hugmyndum áleiðis til stjórnar.</description>
Aðalfundur Kvennakórs Suðurnesja
      <description>Aðalfundur Kvennakórs Suðurnesja verður haldinn mánudaginn 30. maí 2011 kl. 20 í aðstöðu kórsins í Listasmiðjunni á Ásbrú. Venjuleg aðalfundarstörf, kosning stjórnar, lagabreytingar og Færeyjaferð.</description>
Vortónleikar Kvennakórs Suðurnesja
      <description>Kvennakór Suðurnesja heldur vortónleika mánudaginn 16. maí í Bíósal Duushúsa í Reykjanesbæ og sunnudaginn 22. maí í Ytri-Njarðvíkurkirkju. Hefjast tónleikarnir kl. 20 bæði kvöldin.   Kórinn tók þátt í landsmóti kvennakóra sem haldið var á Selfossi 29. apríl - 1. maí þar sem rúmlega 600 konur úr 23 kórum tóku þátt. Dagskrá tónleikanna litast aðeins af landsmótinu þar sem nokkur laganna sem sungin voru á landsmótinu eru meðal þess sem er í tónleikaskránni en þar má nefna Flóaperlur sem eru lög eftir tónskáld úr Flóanum; Í dag skein sól eftir Pál Ísólfsson, Draumalandið eftir Sigfús Einarsson og Bahama eftir Ingólf Þórarinsson, auk hins fallega lags Angel eftir KK og ítalska lagsins Time to say goodbye eða Con te partirò sem söngvarinn Andrea Bocelli gerði vinsælt fyrir nokkrum árum. Á dagskránni verða einnig fleiri falleg íslensk og erlend lög sem og dægurlög í léttari kantinum, gospeltónlist, söngleikjatónlist og kirkjuleg verk.  Það er því fjölbreytileikinn sem ræður för og eiga tónleikagestir von á góðri skemmtun.  Stjórnandi Kvennakórs Suðurnesja er söngkonan Dagný Þórunn Jónsdóttir og meðleikari á píanó er Geirþrúður Fanney Bogadóttir. Einnig leikur Eiríkur Rafn Stefánsson á trompet.  Miðaverð á tónleikana er kr. 1500, frítt fyrir 12 ára og yngri. Miðasala verður við innganginn.  Eins og áður sagði tók Kvennakór Suðurnesja þátt í glæsilegu landsmóti kvennakóra fyrir stuttu en það var Jórukórinn á Selfossi sem sá um framkvæmd mótsins að þessu sinni. Þetta var áttunda landsmót kvennakóra sem haldið hefur verið en þau eru haldin á þriggja ára fresti. Næsta landsmót verður haldið á Akureyri árið 2014 og mun kórinn væntanlega taka þátt þar. Þess má geta að Kvennakór Suðurnesja hélt landsmót í Reykjanesbæ árið 2002. Vorið 2012 ráðgerir kórinn að fara í tónleikaferð til Færeyja og er undirbúningur að hefjast fyrir þá ferð.</description>
Upptaka frá vortónleikum 2008
      <description>Læt fylgja hér með tengil á upptöku frá vortónleikum 2008, þ.e. árið sem landsmótið var haldið á Höfn í Hornafirði, við sungum einmitt tvö af þessum lögum á landsmótinu:STE-004.wav</description>
Dagskrá landsmóts 2011
      <description>LANDSMÓT KVENNAKÓRA Á SELFOSSI 29. APRÍL - 1. MAÍ 2011  FÖSTUDAGUR 29. APRÍL  17.30 - 18.30  Móttaka í Sólvallaskóla, afhending mótsgagna, kórar hitta tengiliði og fá búningsaðstöðu  18.30 - 20.00  Kvöldverður í Íþróttahúsi Sólvallaskóla (þar sem allar máltíðir verða)           Setning landsmótsins Á söguslóð kvennakóra  Erindi frá Vox Feminae - Sigríður Anna Ellerup og Sigurbjörg Aðalsteinsdóttir   20.00 - 23.00  Óvissuferð - farið frá Sólvallaskóla  LAUGARDAGUR 30. APRÍL  09.00 - 11.00  Sameiginleg æfing í Iðu (Íþróttahús Fjölbrautaskóla Suðurlands). Allir  þátttakendur  11.00 - 11.30  Félagsfundur Gígjunnar í Iðu. Allir þátttakendur  11.30 - 12.30  Hádegisverður  12.30 - 13.30  Frjáls tími  Kórstjórnendur funda í Iðu og formenn kóranna funda í Iðu  13.30 - 15.00  Æfing í vinnuhópum (nánari upplýsingar í mótsblaði)   15.00 - 15.15  Kaffi á æfingastöðunum  15.15 - 16.00  Frjáls tími, undirbúningur fyrir tónleika    16.00 - 17.30  Tónleikar kóranna í Iðu og Selfosskirkju                          Sjá skiptingu milli tónleikastaða á www.jorukorinn.is og www.gigjan.is  17.30 - 19.30  Frjáls tími, undirbúningur fyrir kvöldið  19.30 - 01.00  Hátíðarkvöldverður og dansleikur í Íþróttahúsi Sólvallaskóla   SUNNUDAGUR 1. MAÍ  09.30 - 11.30  Æfing í vinnuhópum   11.30 - 12.30  Hádegisverður  12.30 - 14.00  Æfing í Iðu með Stórsveit Suðurlands. Allir þátttakendur  14.00 - 15.00  Undirbúningur fyrir tónleika  15.00 - 16.30  Hátíðartónleikar í Iðu  16.30 - 17.30  Kveðjukaffi í Íþróttahúsi Sólvallaskóla, móti slitið.</description>
Fréttabréf frá formanni
      <description>Kæru kórkonur.  Þið eruð frábærar og skemmtilegar konur að vera með og framundan verða skemmtilegir tímar hjá okkur.  Landsmót kvennakóra á Selfossi verður 29. apríl - 1. maí. Dagskrá mótsins er hér á síðunni.  Ákveðið hefur verið að niðurgreiða þátttöku kórkvenna á landsmótið um 3.500 kr.  Greiðsluseðill sem konur fá fljótlega verður 10.000 kr.   Gist verður á Austurvegi 28, Selfossi, helgin kostar pr. konu 12.415.-  innifalið er gisting í 2 nætur með morgunverði.    Þær konur sem geta farið á eigin bifreið vinsamlegast látið formann vita svo hægt sé að ákveða hver fer með hverjum og auðvitað borga farþegar í bensínkostnaði með bílstjóra.  Þann 7. maí kl. 16 eða 17 munum við syngja í Víkingaheimum fyrir Delta- Kappa-Gamma, sem er félagsskapur kvenna í mennta- og menningargeiranum.  Vortónleikar verða 16. maí kl. 20.00 í Bíósal, Duushúsum og 22. maí kl. 20.00 í Ytri-Njarðvíkurkirkju.  Frábært væri ef við gætum allar tekið þátt í þessum uppákomum.  Mánudagskvöldið 30. maí verður aðalfundur kórsins í aðstöðu okkar í Listasmiðju kl. 20.00, venjuleg aðalfundarstörf, lagabreytingar og  breyting á stjórn.   1. júní er svo lokakvöld vetrarstarfsins. Hildur formaður ætlar að bjóða heim til sín í mat. Eins og venjulega borgar hver kona þátttökugjald sem fer eftir því hvað eldað verður. Heitur pottur er á staðnum fyrir þær sem vilja. Endilega takið frá þetta kvöld.  Nú er allt þetta skemmtilega upptalið og komið að nauðsynlegu hlutunum. Nú þurfa konur að fara að hringja í styrktarmeðlimi kórsins og bjóða þeim að styrkja kórinn eins og venjulega og fá tvo miða á tónleika í staðinn. Einnig að hringja í fyrirtæki og bjóða þeim styrktarlínu í söngskrá.  Miðar á tónleika  og skrár yfir styrktarmeðlimi verða tilbúnir mánudaginn 18. apríl og hvet ég konur til að vera duglegar að að hringja og fá styrki. Nýjar konur í kórnum þurfa að fá þrjá nýja styrktarmeðlimi, þetta er gert svo fjölgi í styrktarhópnum.   Kær kveðja Hildur H. form.</description>
Sameiginleg lög á landsmóti - hljóðskrár
      <description>Hér eru tenglar á hljóðskrár fyrir sameiginlegu lögin á landsmótinu:haustkvold_allar_raddir.midhaustkvold_sopran1.midhaustkvold_sopran2.midhaustkvold_alt1.midhaustkvold_alt2.midsumar_konur_allar_raddir.MIDsumar_konur_sopran1.MIDsumar_konur_sopran2.MIDsumar_konur_alt.MIDvegir_liggja_allar_raddir.MIDvegir_liggja_sopran1.MIDvegir_liggja_sopran2.MIDvegir_liggja_alt.MID</description>
Raddæfing hjá messó
      <description>Raddæfing verður hjá messó mánudaginn 11. apríl.</description>
Raddæfing hjá alt
      <description>Raddæfing verður hjá alt mánudaginn 4. apríl.</description>
Raddæfing hjá sópran
      <description>Raddæfing verður hjá sópran mánudaginn 28. mars.</description>
Raddæfing hjá messó
      <description>Þar sem fyrirhuguðu skemmtikvöldi sem átti að halda 26. mars hefur verið frestað, verður breyting á æfingunni mánudaginn 21. mars, það verður raddæfing hjá messó en ekki allar raddir eins og til stóð.</description>
Raddæfing hjá alt
      <description>Raddæfing verður hjá alt mánudaginn 14. mars. Á miðvikudaginn mætir Geirþrúður og spilar með okkur á æfingunni.</description>
Raddæfing hjá sópran
      <description>Þar sem raddæfing féll niður síðasta mánudag verður raddæfing hjá sópran mánudaginn 7. mars.</description>
Raddæfing hjá sópran
      <description>Það verður raddæfing hjá sópran mánudaginn 28. febrúar.</description>
Raddæfing hjá messó
      <description>Það verður raddæfing hjá messó mánudaginn 21. febrúar.</description>
Raddæfing hjá alt
      <description>Raddæfing verður hjá alt á Valentínusardaginn, mánudaginn 14. febrúar.</description>
Gátlisti fyrir Skálholt
      <description>Það sem þarf að taka með í Skálholt 5. - 6. febrúar 2011:  Rúmföt  Kórmöppu  Inniskó  Álpappírsrúllu  Hatt  Brandara eða skemmtilegan leik  Betri föt fyrir kvöldskemmtun  Góða skapið  Nesti, ef þið viljið ekki kaupa eitthvað í sjoppu á leiðinni. Borðum ekki hádegismat á laugardeginum.  Snakk fyrir kvöldið  Áfenga drykki ef konur vilja hafa með sér.  Hægt er að kaupa rauðvín/hvítvín með matnum og mælum við með því, ekki koma með drykki frá herbergi.</description>
Raddæfing hjá sópran
      <description>Raddæfing verður hjá sópran mánudaginn 31. janúar.</description>
Fréttabréf Kvennakórs Suðurnesja
      <description>Kæru kórkonur. Þá er janúar að verða búinn og við byrjaðar á fullu að æfa fyrir vortónleika sem verða í maí. Því miður varð ekkert af þrettándaskemmtun og álfadrottninginn fékk ekki að láta ljós sitt skína, né nýju búningarnir okkar, en Jóhanna fær að syngja næst því hlutverkið bíður eftir henni. En þá að því sem fram undan er.   Skálholt 5 - 6. febrúar: Æfingabúðir eru fastur liður hjá kórnum, í ár hefur gisting og matur hækkað frá fyrra ári og mun kosta 13.000 kr. pr. konu. Innifalið er kaffi og kvöldmatur á laugardegi og morgunmatur, hádegismatur og kaffi á sunnudegi. Konur koma með sitt eigið lín og í ár verður hattaþema til að peppa upp kvöldstemningu. Lagt verður af stað kl. 10.00 á laugardegi frá SBK og komið heim um 20.00 á sunnudegi.  Messa 13. febrúar í Keflavíkurkirkju kl. 11.00. Mæting kl. 10.00.  Í mars ætlum við að hafa fjáröflunarskemmtun eins og Kvennakór Kópavogs var með og bjóða þeim ásamt Söngsveit Suðurnesja og Víkingunum. Verður þetta í Samkomuhúsinu í Sandgerði og hjálpumst við allar að við að gera þetta kvöld eftirminnilegt eins og okkar er von og vísa. En okkur sárvantar konur í skemmtinefnd í þessum kór og vona ég svo innilega að einhverjar bjóði sig fram í þá nefnd nú þegar.  Búið er að borga staðfestingargjald vegna landsmóts á Selfossi sem er 5.000 kr. pr. konu og verður greiðsluseðill sendur fljótlega til innheimtu. Kæru konur, takið fagnandi á móti honum.  Kórferð til Færeyja 2012.  Ferðanefnd hefur ekki hafið störf en hún þarf að vera í startholunum, en stjórnin fékk bréf frá ÍT-ferðum sem sérhæfir sig í kóraferðum ásamt fleiru og tók sérstaklega fram að þeir hefðu séð um kóraferðir til Færeyja, þannig að við sendum ósk um tilboð í slíka ferð og bíðum spenntar eftir tilboði. En eins og við vitum kostar þetta peninga og ef konur hafa áhuga á að afla sér fjár með því að selja hreinlætisvörur þá endilega talið við Heiðu og eins er ekkert vitlaust að byrja hreinlega að leggja fyrir, við getum þá tekið 1% af launum ykkar og lagt inn á reikning sem verður eyrnamerktur Færeyjaferð. Nei, smá grín. En við getum sent ykkur greiðsluseðil t.d. 3.000 kr. og lagt þannig fyrir.</description>
Raddæfing hjá alt
      <description>Það verður raddæfing hjá alt mánudaginn 17. janúar.</description>